VARÚÐ !! ÞEIR SEM EKKI SÁU SEINASTA ÞÁTT Á SKJÁ EINUM OG VILJA EKKI VITA HVAÐ GERÐIST ÞÁ SKULUÐ ÞIÐ EKKI LESA………

Jæja, þá er enn einn survivorinn farinn og í þetta skiptið var það Rodger :-( Í þættinum sannaðist hve “hjartahlýr” Rodger er. Hann fór í rauninni fyrir Elizabeth. Tina spurði hann hvor þeirra þyrfti peningana meira…. Rodger eða Elizabeth. Hann sagði Elizabeth vegna krabbameins mömmu hennar.

THE REWARD CHALLENGE :
Hún var frekar sérstök. Ekki beint ímynd óbyggðanna, að tala í gegnum ircið. Allir grétu pínulítið… meira að segja Colby !! Þótt ótrúlegt megi virðast grét hann þegar mamma hans sagði “Hi Baby” í gegnum ircið. Keith bað kærustuna sína um að giftast sér og sagði hún auðvitað já (gat hún annað fyrir framan milljónir manns ?).
Tina endaði sem sigurvegarinn og fékk í verðlaun að kaupa eitthvað handa fjölskyldunni sinni fyrir $500 dollara í gegnum netið !

THE IMMUNITY CHALLENGE :
Þar áttu þau að hlusta á sögu um staðinn sem þau voru á (held ég) og hlusta MJÖG vel ! Þau voru með fimm lása á sér og eftir söguna áttu þau að hlaupa á milli staða og reyna að svara spurningum úr sögunni. Þeir sem svöruðu rétt fengu lykil til að losa einn lás og þurftu þau að losa alla. Rodger gekk nú ekkert alltof vel en vildi hann það nokkuð ? Ef hann hefði náð friðhelgi þýddi það að Elizabeth myndi líklegast fara. Ég held að hann hafi ekkert viljað svara spurningunum rétt.
Keith var ótrúlega óheppinn má segja…. hann náði að losa alla lásana en missti einn þegar hann var að hlaupa til baka til að sýna Jeff Probst að hann var með þá alla. Colby kom eins og skutla og náði enn og aftur í Friðhelgi.

HVER FÓR ?
Eins og allir sem horfðu á þáttinn vita að Rodger fór. Gamli kallinn fórnaði sér fyrir Elizabeth. Keith fékk tvö atkvæði, frá Elizabethu og Rodger. Öll hin fékk Rodger :-(
Colby var eitthvað ósáttur við Keith vegna matarskammtsins, sagði að hann skammtaði of mikið. Það kom samt ekki til greina að Colby færi að kjósa Keith út því þá myndi fyrrverandi-Ogakor missa yfirhöndina.