Sæl öll sömul

Ég var að velta fyrir mér með eitt eða tvö atriði og
var að vona þig gætuð hjálpað mér örlítið.

ok Hér kemur það. þannig er að ég er svo til nýkominn á
markaðinn aftur eftir 6 ár og er farinn að ryðga svolítið í
þessum duldu táknmálum sem fólk gefur oft til kynna að það
gæti haft áhuga á hvort öðru.

Um helgina var ég að djamma með fullt af fólki og þar var ein
stelpa sem mér leist vel á :) ok til að gera langa sögu stutta þá
var hún með spurningar eins og “ertu á föstu” og ýmislegt í þeim dúr og á dansgólfinu þá dönsuðum við svolítið saman
og hún dansaði svolítið eggjandi ok allt í lagi með það
en það sem ég er að velta fyrir mér er hvort möguleiki væri á
að hún hefði áhuga á mér eða er þetta kannski bara einhver
óskhyggja hjá mér og þetta var kannski bara einhver ómerkileg
forvitni eða bara manneskja að reyna að vera vinaleg en
þess má geta að fyrir þetta kvöld þá þekktumst við ekki neitt og
hún var dálítið full.

þannig að ég spyr ykkur Hugara hvort ég ætti að
kýla á það og taka áhættuna og gera mig að fífli eða
kæfa þennan draum strax í fæðingu því þetta var bara
óskyggja í mér.