Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

doktorapi
doktorapi Notandi síðan fyrir 21 árum, 4 mánuðum 104 stig

Re: Lélegustu artistar heims...?

í Tilveran fyrir 21 árum
ó jæja??? massaðar górillur geta nú alveg verið frábært fólk, sjáðu bara Dolph Lundgren!!!

Re: Lélegustu artistar heims...?

í Tilveran fyrir 21 árum
get ekki annað en brosað líka, þó ekki nema vegna þess að í tölvustofunni í skólanum hjá mér er alltaf og ávallt staddur þýskur maður sem er líka rastafarii wannabe, og talar allan liðlangan daginn á Skype við einhverja vini sína um eitthvert rasta shit, hlustandi á reggí tónlist með… gífurlega böggandi til lengdar að vera í stofunni með honum…

Re: Skák

í Tilveran fyrir 21 árum
skák er íþrótt hugans, þeir sem tefla mikið og í keppnum, skáksveitum o.sv.frv eru að þjálfa heilabúið í sér. Ég þekki það af reynslu vinar míns sem hefur verið í þessu frá því að hann var krakki, hann er með ótrúlega öflugt minni (búinn að þroska það verulega frá því hann var fyrst að leika sér í skák) og ég myndi beinlínis segja að hann hafi sömuleiðis þroskað greind sína með því að iðka skák. Ennfremur má finna líkindi með skák og öðrum íþróttum með því hvernig skákistar æfa sig fyrir...

Re: Stríðið á Balkanskaga 1912 til 1913

í Sagnfræði fyrir 21 árum
Mér hefur bara alltaf þótt alger synd hvað varð um býsanska keisaradæmið…

Re: Hetjudýrkun páfa?

í Deiglan fyrir 21 árum
kaþólska trúin og fasismi áttu alveg sitt samstarf… Mússólíni notaði trúna sem áróðurstæki (eins og Bush í dag) til að öðlast fylgi almúgans, síðan var það mússólíni sem gerði sögulegan samning við Vatíkanið (concordat) sem ákvarðaði stjórnskipulega stöðu kaþólsku kirkjunnar á Ítalíu, með þessu samkomulagi var staða kirkjunnar eins og hún er í dag grundvölluð…

Re: Hetjudýrkun páfa?

í Deiglan fyrir 21 árum
Stalín dó 1953… Jóhannes Páll II varð páfi 1978… *calculating* = þú ert ekki mjög góður í sögu og/eða stærðfræði…

Re: Ég hata Apple

í Tilveran fyrir 21 árum
sheesh… það hefði verið vit í þessu væli í þér ef að iPod-inn sjálfur hefði bilað hjá þér eða tölva eða eikkvað, en kommon, að bitcha yfir einhverjum fkn heyrnartólum? ekki lítil móðursýki í gangi…

Re: Tundurskeytin heimta sitt

í Sagnfræði fyrir 21 árum
ágætis grein, mér dettur í hug að bæta við að út frá meðaltali sökktu þýskir kafbátar einu skipi per 4 tundurskeyti… sem er ansi öflug statistík

Re: The Matrix

í Kvikmyndir fyrir 21 árum
þú hlýtur að hafa farið öfugu megin fram úr í morgun Damphir, því þú fyrtist við svör mín. Ég er reyndar enginn menntaður táknfræðingur, einungis að velta fyrir mér inntaki Matrix myndarinnar almennt og tilvistarrétti þessa tiltekna frasa sértækt, líkt og þú. Ég kemst að þeirri niðurstöðu að frasinn eigi rétt á sér, sakir listræns gildis (Fishburne segir þetta með svölum tóni), en ég geri mér grein fyrir að þetta er ef til vill óþarflega ljóðræn orðræða til þess að lýsa þeim fyrirbærum sem...

Re: Guð blessi páfann

í Tilveran fyrir 21 árum
mikið agalega hljómar þú auðsærður með þessu biturlega svari… og til hvers varstu svo sem að deila hlátri þínum með okkur yfir hommatitts commenti andriastesar ef þér fannst raunverulega alls ekki fyndið að sjá fólk kallað uppnefnum í dellukjaftæðisumræðum á internetinu, eins og þetta “Haha!” komment leit svo sannarleg út fyrir að vera…

Re: Hvaða mynd er besta mynd í heimi?

í Tilveran fyrir 21 árum
mynd sem ég gerði með vinum mínum þegar framhaldsskólakennarar fóru í verkfall og heitir Yes and No… hún er virði þyngdar sinnar í fullkomnum demanti

Re: 6milliónir gyðinga, -2,9milliónir?

í Sagnfræði fyrir 21 árum
ég er annars ekki að ráðast á einn eða neinn hérna, ekki þig heldur skuggi (actually I think you're kinda cute), með því að segja að umræðurnar hérna fari frekar oft fram með meiri kappi en forsjá… það er bara mín skoðun

Re: 6milliónir gyðinga, -2,9milliónir?

í Sagnfræði fyrir 21 árum
ég sagði það alls ekki, það sem ég sagði reyndar var að ég veigraði mér við að tjá mig um þessa hluti vegna þess að ég hef á tilfinningunni að ég kynni að vera að fara með rangt mál, ef ég færi að túlka fréttaflutning af hinum eða þessum atburðum. Hinsvegar finnst mér öðru máli gegna þegar við fjöllum um hreina lógík, það má flokka rök niður með skipulegum hætti (og hefur verið gert síðan Sókrates rakti garnirnar úr fólki) og ýmislegt sem fólk segir og hljómar sem rök eru í raun rökvillur...

Re: 6milliónir gyðinga, -2,9milliónir?

í Sagnfræði fyrir 21 árum
Ég veit það ekki… held bara að allar þessar umræður sem blossa upp hérna sem annarsstaðar, þar sem fólk skipar sér í með-á móti fylkingar um Ísrael og Palestínu eða Bush og Kerry eða Darfúr hérað eða what-have-you-not eigi bara eitt sameiginlegt, og það sé þekkingarleysi á raunverulegum ástæðum, forsendum, orsökum og afleiðingum þess sem verið er að ræða um… Þetta er póstmódernísk afstaða, en vitleysisgangurinn sem æðir upp og niður um milljón korka og greinar hérna t.d. bendir einungis til...

Re: Nifteindastjörnur

í Geimvísindi fyrir 21 árum
GG, og enn betra að þú hafir mynd af öðlingnum Dr. Merkwurdigliebe sem mynd af þér…

Re: Strigaskór fyrir Sumarið

í Tíska & útlit fyrir 21 árum
alhæfing um merkjavöru… en ég geri ráð fyrir að þú eigir við merkjavöru merkta "made in [þróunarland]"… engu að síður stendur eftir að þú alhæfir að þá sé alltaf um að ræða barnaþrælkunarvinnubúðir… sem ég tel hæpið að eigi alltaf við… en eigi að síður, þá vinna börn sömu arðránsvinnu og fullorðnir við suma þá hluti sem ég nefndi, svo sem bananana…

Re: Strigaskór fyrir Sumarið

í Tíska & útlit fyrir 21 árum
verslarðu þá aldrei framandi ávexti, eins og banana? (oftast framleiddir suðurríkja-style í réttnefndum bananalýðveldum við misgóðar aðstæður) ellegar ljósaperur (made in china)? passarðu þig alltaf að skoða hvaðan varan er? staðreyndin er sú að meirihluti framleiðslustarfa í heiminum í dag eru unnin í löndum með ódýrt vinnuafl, sem ekki hafa gengið gegnum sömu kjaraþróun og við með okkar verkalýðsfélög, það er nánast ómögulegt að lifa á vesturlöndum eins og við gerum án þess að njóta...

Re: Strigaskór fyrir Sumarið

í Tíska & útlit fyrir 21 árum
En ef þú ætlar að vera sjálfri þér samkvæm með allar vörur sem búnar eru til með slíkum hætti þá lendirðu í vandræðum…

Re: Strigaskór fyrir Sumarið

í Tíska & útlit fyrir 21 árum
þú veist samt líka hverjum sniðgöngurnar koma harðast niður á… “first fired, last hired”

Re: Guð blessi páfann

í Tilveran fyrir 21 árum
fágaður húmor, Damphir…

Re: Guð blessi páfann

í Tilveran fyrir 21 árum
til hvers varstu að bíða eftir því?

Re: Besta gabbið?

í Hugi fyrir 21 árum
ég fékk lykil hjá móður vinar míns, og á meðan aukaaðili hélt athygli hans fanginni í pool fórum ég og 2 félagar inn í herbergi til hans með nokkrar rúllur af álpappír og pökkuðum öllum eigum hans inn… it was lovely, allir diskarnir í CD-standinum, bækurnar á hillunum, hurðarhúnninn, græjurnar+hátalarar, gítarinn hans, ruslatunnan á gólfinu, myndir á veggjunum, allskyns smáhlutir auk lampans á skrifborðinu (m.a. pennarnir í pennaveskinu, og síðan pennaveskið sjálft), síðan kórónuðum við...

Re: Rokk Hátið í Egilshöll

í Músík almennt fyrir 21 árum
ég fékk dagblað úr framtíðinni skyndilega á stólinn við hliðina á tölvunni hjá mér, vitiði hvað stóð? “MESTU HAMFARIR FRÁ VESTMANNAEYJAGOSI RIÐU YFIR SUÐURLAND Í GÆR ÞEGAR HLJÓMSVEITIRNAR SKÍTAMÓRALL OG SÁLIN HANS JÓNS MÍNS TROÐFYLLTU EGILSHÖLL SVO YFIRFULLA AÐ HITTASTIGIÐ INNANDYRA NÁLGAÐIST SKV. INNRAUÐUM GERVITUNGLAMÆLINGUM UM MILLJÓN GRÁÐUR Á CELSÍUS. VIÐ ÞAÐ VARÐ ÁSTANDSBREYTING Á ÖLLU UMHVERFI SVIÐSINS YFIR Í SK. QUARK-GLUON PLASMA RAFGAS ÁSTAND, EN ÞAÐ ER HVARFGJARN FASI EFNA VIÐ MJÖG...

Re: Strigaskór fyrir Sumarið

í Tíska & útlit fyrir 21 árum
Getur verið, Lonni, að það sért þú sem sért ‘vitleysingur’, og að þú yfirfærir það yfir á allt og alla aðra í kringum þig… ?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok