Ég er nú aðeins yngri en þú, en hef pælt mjög mikið í þessu. Ég er kvenmaður í háskólanámi og tel að ég ætti að ljúka því fyrir barneignir, svo að ég hafi meira að bjóða barni mínu. (tíma og hef væntanlega betri laun o.s.frv). En margir hafa sagt við mig að fyrsta barn eigi helst að koma fyrir 30tugt, því að annars verðuru svo gamalt foreldri, svo er einnig minni líkur á að fólk yfir þrítugu nenni að standa í þessu. Eru orðin svo vön að vera bara tvö ein saman og vilja fara að njóta áranna...