Ég hef stundum hugsað um það, hvað kennarar ungra barna og unglinga geta verið hræðilega illskeyttir og hreinlega ósanngjarnir, þegar þeir þurfa alls ekki að vera það!
Ég á tvö börn í öðrum og fjórða bekk og eitt á leikskólaaldri,
og er hreinlega orðlaus stundum þegar þau koma heim úr skóla með nestið sitt óétið, vegna þess að kennarinn segir að bekkurinn sé svo óþægur að nestið verði ekki borðað í dag, og næsta dag koma þau heim og spurja hvað þýðir að koma frá helvíti? því að kennarinn hafi sagt það við Nonna bekkjarbróður! Nei, í alvöru ef þú ert kennari lesandi góður þá hafðu það hugfast að barnasálin er mjög viðkvæm og brothætt, og það hefur enginn rétt á því að misnota aðstöðu sína til að geta fengið útrás fyrir hvað það nú er sem “kennarar” fá útrás fyrir!