Nú er ég alveg að vera brjálaður. Hvað er málið með íslenskar stelpur á aldrinum 16-27 ára í dag hérna í Reykjavík. Fyrir nokkrum dögum komu hingað herskip frá NATO flotanum og sátu hér við höfn í viku eða svo. Nokkrar vinkonur mínar voru að væflast þarna og ákváðu skyndilega að gerast “skipa-mellur.” Þær stigu um borð og að sjálfsögðu tóku kynlífssnauðir portarar við þeim opnum örmum. Stelpurnar tala um þetta sem “lífsreynslu,” mér þykir það fáránlegt að orð þetta þannig. Þær hafa sagt mér persónulega frá reynslu sinni þarna og segja að það hafi verið stjanað í kringum þær, sjóliðar gerðu heiðurssamkomulag að reyna ekki við “vinkonu” annars og þar af leiðandi fengu stelpurnar að kynnast “öryggi” sjóliðanna. Einnig var talað um hversu mikið þeir stjönuðu í kringum þær, gáfu þeim sígarettur og ókeypis áfengi eins og þær gátu í sig látið. Hvað segir þetta ykkur? Jú, auðvitað stjönuðu þeir í kringum þær því að eins og allir strákar vita er miklu auðveldara að ná sér í auðveldan drátt hjá út úr áfengisrotaðri gellu. Málið er að þær viðurkenna allar að þær hafi sofið hjá þeim eða riðið þeim nema ein því að hún veit að ég mun fordæmana hana 4ever fyrir það. Samt sem áður geta þær ekki hætt að lofa þessum djöflum, segja hvað þeir eru frábærir og hafa ekkert verið að biðja um kynlíf *hóst*bull*hóst*shit* og hafa ekkert reynt við þær nema þær hafa gefið þeim merki á undan til að leyfa þeim það.
Ég tel mig alveg vita hvað er málið við þessa menn. Þeir fara á milli landa í túrum sínum, eru alltaf tyggjandi sömu þvæluna upp í stelpur og þeir eru orðnir svo æfðir í þessu að þeir spotta mistök sín áður en að stelpan fattar það sjálf. Þetta eru ekkert nema lágkúrulegir einstaklingar sem eru að misnota saklausar íslenskar sveitameyjar og ljúga þær blindfullar af tómri vitleysu. Til að mynda geta tvær af mínum vinkonum ekki hugsað sér neitt annað betra en eitthvað “sældarlíf” í Portúgal með þessum einstaklingum haldandi að það sé eitthvað betra heldur en hér. Málið er bara að þessi sjóliðar eru “full of shit” og ég bendi strákum á að forða vinkonum sínum undan álögum þeirra og lygum. Þessar ofangreindar stelpur eru reyndar ekki með stefnu sína ákveðna í lífinu og þar af leiðandi er léttilega hægt að “influencera” þær að mörgu leyti. Málið er einfaldlega það að “Ísland er best, ískalt”. Þið sem haldið að þessi grein sé skrifuð í öfundsýki þá hafiði algjörlega misskilið efni hennar. Góðar stundir.

Kveðja
ScOpE-stah!