Ég á vinkonu sem er hrifin af þessum strák. Sem er algjör hálviti að mínu mati (þó hann sé vinur minn). Enn ok þó hún sé hrifin af hálfvita. Þau eru búin að vera saman um helgar og sundur í miðri viku í eitt og hálft ár! Fyrir ári byrjuðu þau opinberlega saman og hann döpaði henni eftir nokkra daga! Því hann vissi ekki hvað hann vildi. Hann sagðist elska hana og allt það enn hann væri bara ekki tilbúin í þetta núna. Hann bað hana um að bíða eftir sér. Ok hún beið og beið og árið leið (smá rím hérna :) ) Og sama sagan byrjaði aftur þau voru saman á fylleríum en ekki saman fyrir utan það. Gaurinn alltaf að segja við hana hvað hann elski hana mikið og allt það enn ef að hún fór eitthvað að gefa í skin að hún vildi meira þá lokaðist hann allveg. Svo í kvöld þá gerist það að þau fara að kela og eitthvað þannig nema hvað að korteri seinna hættir hann og segir að þau verði nú að hægja á sér! Ok hún hélt að hann væri bara að meina svona kossa og káflega séð. Enn nei þá kom sama helv…ræðan aftur að hann elskaði hana svo geðveikt mikið og sæi framtíðina fyrir sér með henni enn hann væri bara ekki tilbúinn í þetta núna. Og aftur bað hann hana um að bíða eftir sér. Hún varð nottla sár og reið og sagði honum að hún væri búin að bíða í ár og hún meikaði þetta ekki lengur, fór að gráta fyrir framan hann og allt. Svo hringdi þessi vinkona í mig áðan allveg hágrátandi og gjörsamlega á barmi taugaáfalls. Það munaði svo litlu að ég hringdi í þennan “vin” okkar og drullaði yfir hann. Enn það hefði nú ekki gert vinkonu minni mikið gagn. Versti parturinn við málið er að þau eru bestu vinir og hún hangir með honum alla daga vikunnar þannig að hún er alltaf með hann fyrir framan sig og þar af leiðandi er mjög erfitt fyrir hana að gleyma honum bara. Svo núna um áramótin þá ætlar hann að flytja inn til hennar því hún er sko að leigja íbúðina hans. Og þá á allt allt í einu að vera ýkt gott og happy!!!!!! Þetta er svo sick gaur að það hálfa væri nóg. Og spáið svo í einu á þessum langa tíma þá hefur hann aldrei sofið hjá henni. Þannig að annaðhvort er hann hommi eða eitthvað afbrigðilegur karlmaður. Vá þetta er svo mikið rugla að ég efast um að nokkur skilji þetta :) Enn endilega gefið mér ykkar álit á þessu ruglaða máli!