Ég er búin að vera að hlusta á Forty Licks og reyna að hlusta meira á þessa hljómsveit. Mig langar bara að hlusta á eitthvað fleira en bara þessi vinsælustu. Með hverju mælið þið?

Ég er mikið fyrir blús og ég hef heyrt að þeir byrjuðu mikið í blús. Getið þið nefnt dæmi um þau lög sem myndu teljast sem blús (eða blús-rokk, eða hvað sem þið viljið kalla það)

Takk fyrirfram,
Ægishjálmu