Það er eitt sem mér finnst vanta í leitina hérna á huga. Mig langar að sjá hvað mitt fyrsta svar hérna á huga var en ég nenni ekki að ýta endalaust á “næstu 25”.

Af hverju er ekki eitthvað “fara á enda” eða hægt að ýta á númer síðu? Eða þá að geta leitað eftir dagsetningu? Það myndi auðvelda mikið. Það væri líka gaman að geta leitað að umræðum um ákveðna atburði, t.d. 11 sept.

Hvernig líst ykkur á að bæta því við? Annars finnst mér leitin hérna hafa lagast mjög mikið og ég er mjög ánægð með það sem er búið að gera.