Ég er með kvíðatilfinningu í maganum. Ég hef ekkert til að kvíða fyrir, virðist ætla að vera skemmtilegur dagur á morgun, en samt er ég með þessa tilfinningu :S

Mér finnst eins og eitthvað slæmt sé að fara að gerast, ég vona samt ekki. Hefur alveg komið fyrir að ég fæ nákvæmlega þessa tilfinningu og eitthvað slæmt gerðist. Oftast er það samt ekki þannig.

Ég bara vona ekki …

Þetta er líka í ættinni, dreyma fyrir og þannig. Amma mín fékk einhvertntímann svona tilfinningu og þá dó einhver :S

Langaði bara að koma þessu frá mér …

Einhver annar sem lendir í þessu?