Jæja, nú þoli ég ekki lengur að vera myndavélarlaus! Mín eyðilagðist í vor og er alveg ónothæf … Ég er einmitt bráðum að fara á einn fallegasta stað landsins að mínu mati (Egilsstaðir og Héraðið) og ég verð að hafa myndavél!

Með hverju mæliði? Hvað er best í dag? Ekki endilega neitt hræðilega dýrt, bara vel nothæf myndavél. Ég á/átti Canon IXUS iis og mér líkar mjög vel við Canon. Hvar fæst þetta svo helst?