Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

dha
dha Notandi frá fornöld 36 ára kvenmaður
1.508 stig

Re: augnlinsur

í Tilveran fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Fer eftir því hvernig augu þú ert með. Ég er viðkvæmari í augunum eftir að ég fór að vera með linsur annað slagið. Ég hef ekki einu sinni verið með linsur það oft (nota dagslinsur til hátíðabrigða :P) og ég er strax hætt að geta verið nokkra daga í röð.

Re: Hvað er það lengsta sem að þú hefur sofið ?

í Tilveran fyrir 16 árum, 8 mánuðum
14 tímar er sirka það sem ég næ á venjulegum degi (þ.e. án þess að hafa vakið eitthvað sérstaklega lengi á undan). Hef aldrei prófað að vaka mjög lengi og sofa svo lengi á eftir, hef aldrei haft tíma/aðstæður til að gera bæði í einu :P

Re: Stop-motion

í Kvikmyndagerð fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Fyrirgefðu að ég er að svara á gömlum þræði … Ég er núna komin með macca, hvaða klippi/video forrit notarðu?

Re: Keppnin

í Ljósmyndun fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Þetta er sko aðal húmorinn hjá fyrsta árs efnafræðinemum í HÍ. MgO is the new OMG :)

Re: Rétti aldurinn?

í Tilveran fyrir 16 árum, 8 mánuðum
18 ára er góður aldur. Ég mæli með því að ákveða ákveðinn aldur sem þú ætlar að byrja fyrirfram, standa svo við það og geta verið ánægð(ur) með að hafa staðið við það :) Það er meira kúl heldur en að byrja að drekka alltof snemma. Ég á t.d. vin sem ætlar ekki að drekka fyrr en 20 ára, bara búinn að ákveða það fyrir löngu. Og hann hefur langað oft að drekka þegar allir vinir hans eru að því. En mér finnst ótrúlega flott að hann skuli standa við þetta :) Bætt við 20. október 2008 - 11:23 Það...

Re: Keppnin

í Ljósmyndun fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Já, ttly! MgO! (Þú verður að afsaka nördahúmorinn)

Re: Skerpa litina

í Ljósmyndun fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Photoshop eða Lightroom eða Gimp. Gimp fæst frítt á netinu og er vel nothæft ef maður er ekki að gera neitt flókið.

Re: Uppáhalds áhugamál?

í Tilveran fyrir 16 árum, 8 mánuðum
/heilsa

Re: Morfís drátturinn búinn - spáið í spilin

í Skóli fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Ég þekki ME liðið en þar sem ég veit ekkert um hina skólana veit ég ekki hvernig þau standa miðað við hin …

Re: skóla mál

í Tilveran fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Whatever makes you happy :) Ef þú ert sáttur þarna, vertu þá þarna.

Re: Ungir krakkar og áfengi..

í Tilveran fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Fræðsla gerir ekki neitt. Gerir jafnvel bara verra. Sérstaklega þegar krakkar alast upp við slæmar aðstæður, það er ekki hægt að gera neitt.

Re: Þetta er spurning, spurning sem þú átt að svara eftir bestu getu.

í Tilveran fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Éta svona froskanammi sem var einu sinni eins og froskar í laginu en er núna bara græn stöng með súkkulaði utaná. Og skoða huga og þykjast vera að læra heima. Sjitt, ég þarf að klára að læra …

Re: Áfengi

í Heilsa fyrir 16 árum, 9 mánuðum
15-16 ára eiga náttúrulega ekkert að vera að drekka. Mér finnst 18 fínn aldur, flestir orðnir nógu þroskaðir þá.

Re: Merking mannanafna

í Tilveran fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Jájá, þetta var ekkert endilega ætlað þér. Bara svona almenn komment á þennan lista :)

Re: Ég á líka afmæli

í Tilveran fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Afmæli eru mis-merkileg eftir fólki. Fyrir suma er þetta heilagur dagur, aðrir hafa ekki fyrir því að muna eftir því. Eina ástæðan fyrir að ég tek sérstaklega eftir að ég eigi afmæli (þ.e. fyrir utan það þegar ég rekst á dagsetninguna) er að ég á tvíburasystur sem sér um að muna eftir því :) Veit ekki hvort ég myndi muna það ef hún myndi ekki minna mig á það frekar oft :P

Re: Merking mannanafna

í Tilveran fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Það vantar tvö nöfn þarna sem ég hefði viljað sjá :/ Annað meira að segja mun algengara en margt þarna og með mjög augljósa merkingu - Mar. Það eru meira að segja nöfn tengd þessu. Ekki nógu gott … Bætt við 15. október 2008 - 16:52 Þrjú meira að segja!

Re: Merking mannanafna

í Tilveran fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Mitt líka :/

Re: Hitt og þetta..

í Tilveran fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Þetta var svo gott! Ég sakna þess :/

Re: Áfengi

í Heilsa fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Einmitt. Skil ekki hvað er vandamálið með að drekka ekki. Ég hef allavega ekki átt í erfiðleikum með að vera edrú annað slagið, fólk meira að segja verður ánægt þegar einhver segist ekki drekka.

Re: Tóbak, unglingar og afgangurinn...

í Tilveran fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Eina manneskjan sem ég þekki úr MS er einmitt alltaf með í vörinni. Hvað er málið?

Re: Hvað er á skrifborðinu þínu?

í Tilveran fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Skrifborðið mitt er svo stórt! Venjulega er ég með allar skólabækurnar mínar, pennaveski, vasareikni, síma, peningaveski, ipod, lykla og eiginlega allt sem ég nota dags daglega, plús fullt af drasli sem ég nenni ekki að ganga frá.

Re: Færeysk bylgja á Íslandi?

í Tilveran fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Haha :D Ég var einu sinni að passa færeyskar stelpur sem áttu sko videospólu um hann! :O Ekkert smá flott!

Re: Færeysk bylgja á Íslandi?

í Tilveran fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Er það? Ég hef ekkert heyrt neinn tala um þá í langan tíma.

Re: Færeysk bylgja á Íslandi?

í Tilveran fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Jú, ok. En ekkert svona æði í dag, ekki eitthvað sem allir eru að hlusta á. Það er svo langt síðan maður heyrði mikið um Týr og ég hef aldrei heyrt um neinn sem fílar Jógvan …

Re: Hatursbolir!

í Tilveran fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Einn og einn fyndinn, en hinir voru of mikið að reyna að vera fyndnir … Fáum bara Hugleik Dagsson í þetta!!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok