Hver man ekki eftir súkkulaðinu hitt og þetta?

Annars þá er ég með til sölu Canon Ixus 70. 7.2 mpxl. Búin að reynast mér afar vel þetta ár sem ég hef átt hana, er að selja hana því ég uppfærði mig. Æðisleg fyrir byrjendur sem eru bara að byrja að fóta sig í ljósmyndun og vilja ekki fara út í dýra dótið strax. Með fylgir auðvitað hleðslutæki, allir geisladiskar sem fylgdu með, er nokkuð viss um að ég eigi ennþá leiðbeiningarnar og svo minniskort, 32M.

Keypti hana á 30þús fyrir rúmu ári síðan svo ég sel hana á helmingsverði eða 15.000þús fyrir allt saman.

Og já endilega lýsið persónuleikunum ykkar. Can't wait!