Ég hef því miður ekki séð mikið af bókum um þessi málefni hérna heima en ég hef sjálf pantað mér bækur í gegnum amazon.co.uk, þeir eru traustir, ekki mikið mál að panta hjá þeim, það eina sem þú þarft að gera er að borga 14% skatta þegar að bækurnar koma til landsins + auðvitað sendingakostnað. Það fer rosalega eftir því hvað þú ert að sækjast eftir, sumar bækur eru bara með spells og svoleiðis, aðrar gefa þér betri innsýn í galdramenningu / Wicca A-Z, enn aðrar eru sérstaklega um jurtir og...