Fram til þessa hefur stefna í menntunarmálum verið of einsleit. Það er til fullt af fólki með mikla hæfileika, sem hefur ekki áhuga né tækifæri á því að fara í langt bóknám. Því væri gaman að sjá meira af starfstengdu námi og verknámi. Kostnaðurinn sem samfélagið hefur af þeim einstaklingum sem leggja út á glæpabrautina er gífulega hár (réttarkostnaður, rannsóknarkostnaður, glataðar vinnustundir, glötuð heilsa o.fl), svo ekki sé talað um miskann sem þeir valda samborgurum sínum. Sé tekið á...