Hræðileg frétt Ég veit ekki mikið um þetta, nema það sem ég heyrði á Skjá einum.
Maður var í bíó í Bandaríkjunum með kærustunni sinni, hann var að reykja, vörður í bíóinu kom til að biðja hann að hætta því, hann sagði nei, kyssti kærustuna sína og bað hana um að fara geim, dró svo upp hníf og réðst á vörðinn.
Svo kom löggan og gaurinn særði eina löggu og önnur særðist af því að vera skotin í rassinn af annarri löggu. Þá fór löggan að skjóta hann, og skaut tuttugu kúlum í hann!!!
Hvað er í gangi?! Hvað á svona villiskapur eiginlega að þýða!!!!
Þetta er nú bara óþolandi hálfvitaskapur í löggunni!! Maður skýtur ekki mann tuttugu sinnum fyrir það eitt að ráðast á mann með hníf og særa eina löggu!!!!!!
Svo er ekki einu sinni víst að nokkuð verði gert útaf þessu.
Maður er alltaf að heyra svona fréttir frá Bandaríkjunum, ég held að þeir ættu að fara að skoða hverja þeir eru að ráða í vinnu í löggunni og fara að vanda aðeins valið!!
Just ask yourself: WWCD!