Mamma skildi aldrei af hverju ég fór í bæinn, sagði að ég hefði ekkert erindi þangað og ég skil hana svo fullkomlega núna þó mér hafi fundist hún alger rugludalla í den… ungir krakkar hafa nákvæmlega ekkert erindi í bæinn en vandamálið er alltaf að það er enginn staður til fyrir framhaldsskólafólk, þó það hafi verið reynt að koma af stað slíkum stöðum ganga þeir ekki því það fer enginn þangað því það má auðvitað ekki drekka á slíkum stöðum (muniði eftir villta tryllta villa, í seinna skiptið...