Guð sjáið kjólin sem hún er í, oj….
Vá hvað hún er búin að fitna…
hvað er að sjá þessa hárgreiðslu…
andlitið á Manuelu er eins og…
þessi er sko greinilega með sílikon..
þessi á sko engan vegin heima í fegurðarsamkeppni…

Hvað voruð þið að lesa rétt í þessu, dæmigerðar setningar sem íslenskur kvenmaður lætur úr sér.

púff hvað skal segja.
KONUR ERU KONUM VERSTAR! Þetta er orðið alvarlegt vandamál, afhverju eru stelpur alltaf svona við kynsystur sínar, ég var að lesa greinina um ungfrú Ísland og öll tilsvörin við henni vá ég fékk bara séð og heyrt ókeypis, þvílík grimmd og blóðúthellingar. Samkvæmt gróflegum útreikningi mínum á kynjaskiptingunni þarna og svörum þeirra má sjá að kvenkyns aðilarnir sem svara greininni voru flestar með hörðustu athugsemdirnar, ég var bara farin að vorkenna þessari Manuelu. Nei, án gríns stelpur þið vitið þetta sjálfar og ég veit að ég get verið svona sjálf en ég bara bið ykkur að hugsa ykkur tvisvar um áður en þið dæmið kynsystur ykkar. Sjálf er ég nýbyrjuð að vinna á svona hálfgerðum karlavinnustað og það er alveg frábært, því maður veit það að það er ekki verið að baknaga mann. Strákar eru ekki svona við aðra stráka allavega ekki þeir sem ég þekki.

Ég held svei mér þá eins og hvað ég get verið mikil kvenremba í mér, að við verðum að taka ofanaf fyrir strákum og meira segja endilega stæla þennan eiginleika þeirra.