Jæja í dag lét ég verða að því :) Skundaði í World Class og keypti mér eitt stykki árskort.. það er ekki seinna vænna :):):) Um áramótin setti ég mér það markmið (áramótaheit) að á árinu mundi ég hafa það af að ná mér í magavöðva sem sjást ;) Nú er bara að láta allt sukkið lönd og leið (nema súrt hlaup, ég er sjúk í súrt hlaup) og byrja á heilsusamlegu líferni..

Ég ætla að fara á morgnana og er það ekki rétt hjá mér að maður á ekki að borða áður en maður fer í ræktina á morgnanna????
Fyrsti dagurinn verður á morgun :) ég hlakka ekkert smá til.. þegar ég var 16-18 ára var ég 4x í viku þarna en einhvernvegin hætti ég og hef ekki komist á skrið aftur… Nú verður það bara harkan sex.. magavöðvarnir skulu koma :):):) jííííhaaaaa…. búin að halda upp á þetta afrek mitt (að kaupa árskort) með því að glápa á sjónvarp og éta snakk ;) sukkið kvatt…


Ég er búin að ákveða að sumarið 2002 verður heilsusumar.. hjólað, farið í sund, Esjuganga :)


heilsukveðjur
daja :-)