Já, mér finnst þær samt risastórar, en skil samt hvað þú ert að fara. Mér finnst þær annaðhvort ógeðslega þykkar og stórar eða geeeðveikt mjóar og langar… I just don't get it!
Uuu…hef aldrei tekið eftir svona svakalegum augabrúnum á emo eða gothfólki, en sure, þetta fer ekki neinum vel! Mér finnst þetta bara svo rosalega algengt hjá skinkum.
Mér finnst þetta bara vera spurning um hvað er rétt og hvað er rangt. Ef enginn kippir sér upp við stafsetningarvillur og svoleiðis þá endar íslenskan náttúrulega bara í rugli í framtíðinni. Hef aldrei verið leiðrétt fyrir að gera þrjá punkta í endann á setningu, en fyrirgefðu ef það fór í taugarnar á þér.
Ég held að þessar villur sem þú gerðir áðan gefi honum alveg frekar góða hugmynd um þína íslenskukunnáttu… Og svo er ég sammála, þetta er drullupirrandi…
Ég sagði að allir ættu að komast inn í hvaða skóla sem er ÓHÁÐ ÞVÍ HVAR ÞEIR BÚA… Það eru til dæmi um fólk sem hefur komist inn í t.d. MR með lægri meðaleinkunn en hann var með. En með þessari hverfaskiptingu minnka líkurnar á því að því takist, og það er fyrst og fremst það sem ég er að meina…mér finnst ósanngjarnt að fólki sé bara hent í hverfisskólann sinn. Bætt við 19. júlí 2010 - 22:40 En, þú hefur samt alveg nokkuð til þíns máls, þessi strákur er kannski ekki besta dæmið um þetta…
Af hverju eru svona margir hérna sem geta ekki skilið hvað það er ósanngjarnt að fólk fái ekki að komast inn í hvaða skóla sem er, óháð því hvar það býr? Sumir hafa einfaldlega metnað fyrir námi, þess vegna er bjánalegt að kalla þetta “væl”. Það eru ekki allir sem ætla bara að slefa í gegnum hverfisskólann sinn rétt til þess að ná stúdentsprófi…
ég fékk nikita úlpu, náttbuxur, lopapeysu, 2 bækur, 3 dvd diska, vero moda skyrtu, eyrnalokka, hálsmen, kertastjaka, leggings, handprjónaða vettlinga…ooog ekkert meira held ég. ÝKT sátt!
mér finnst chuck ekkert voðalega fallegur en mér finnst blair hins vegar vera ein fallegasta manneskja sem ég hef séð. annars eru þau bæði alltaf í mjög flottum fötum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..