Hæ. Ég vil bara koma því á framfæri að það er ekki viðeigandi að gera grín að þessu og ÞETTA ER EKKI FYNDIÐ. Hættið þessu. Að horfa á/lesa um þar sem er gert grín að þessum viðbjóði er ógeðslegt, óþroskað og heimskulegt, og það er enn meira ógó þegar þið dreifið þessu “gríni” út um allt.

Líka þið sem eruð að segja ‘Þetta er ekki komið á það stig að það sé í lagi að gera grín að þessu’, ÞETTA MUN ALDREI KOMAST Á ÞAÐ STIG AÐ ÞAÐ SÉ Í LAGI AÐ DJÓKA MEÐ ÞETTA. Þetta mál er í topp fimm af því ógeðslegasta sem ég hef nokkurntímann heyrt, mér líður illa af því að lesa um þetta og það er einfaldlega niðurdrepandi að sjá fólk, sem á að kallast siðmenntað, gera grín að þessu. Bara stop it. Þetta er ekki kúl og þetta er ekki fyndið.