Hugmynd um hraðlest á Íslandi er vægast sagt fáránleg. Það eru einfaldlega allt of fáir á Íslandi til að slíkt brjálæði gæti nokkurn tíma borgað sig. Og að tengja hraðlest við Keflavík! Keflavík! Af hverju ekki þá bara Súðavík líka, eða Reyðarfjörð? Ókei, það fara vissulega fleiri á milli Reykjavíkur og Keflavíkur vegna flugvallarins, en samt… Kommon, þetta er 270.000 manna land…