Þetta er orðið alveg hræðilegt þetta stríð milli Ísraela og Palastínumanna. Ef einnhver hryðjuverkamaður gerir eitthvað þá er strax ráðist til baka og það á almenna borgara.
Ísraelar nýta hvert tækifæri til að ráðast á palestínumenn og þeir eru með herinn tilbúinn til að hefna sín. Er hægt að túlka þetta eitthvað öðruvísi þegar gerðar eru loftárásir örfáum klukkustundum eftir að rútan er sprengd.
Palestínumenn mættu aftur á móti reyna að slappa aðeins af og reyna að skilja það að þeir geta ekki unnið Ísreaela. Eina leiðin fyrir þá að vinna eitthvað er að fá stuðning annarra þjóða og það fá þeir ekki með því að drepa og drepa og drepa.