Sammála Azmodan. Last Crusade finnst mér best (ein af mínum topp 5 uppáhaldsmyndum), svo Raiders og svo Temple of Doom síst. Finnst þær allar samt frábærar og ég vona að sú fjórða verði aldrei gerð. Þeir klúðra því pottþétt með leiðinlegum CGI kúkabrellum ala nýju Star Wars-myndirnar.
Mér finnst að Pianist hefði átt að vera valin besta mynd. Ég er sammála því að Polanski átti óskarinn skilið fyrir leikstjórnina, þó óneitanlega hefði verið gaman að sjá Scorsese fá hann loksins. Hefði samt verið hálfgerður samúðaróskar…….skil enn ekki af hverju hann fékk hann ekki fyrir Goodfellas á sínum tíma. Adaptation fannst mér synd að skyldi ekki hafa unnið besta handrit (adapted) Adrien Brody átti verðlaunin sannarlega skilið. Það hefði Day lewis reyndar átt líka en hann á hvort eð...
Fín grein, en ef mér skjátlast ekki þá söng Terry Glaze bara á fyrstu plötunni. Á “Projects…” og “I Am the Night” er dúddi sem kallar sig Terrence Lee og er mun skárri söngvari. Það var svo hann sem Phil leysti af fyrir “Power Metal”
Hiklaust eitt besta band fyrr og síðar. John Paul Jones er minn maður í bandinu. Houses of the Holy finnst mér samt besta platan þeirra. Hefur einhver hérna lesið “Hammer of the Gods”?
Bestu plötur ársins að mínu mati: Audioslave - Audioslave Aldrei hefur nokkur plata komið mér jafn skemmtilega á óvart og þessi. Ég var mjög skeptískur á þetta RATM/Cornell combó þegar ég heyrði af því fyrst en svo loksins þegar ég heyrði plötuna sá ég að þetta band ætti mjög fljótlega eftir að verða uppáhaldshljómsveitin mín. Öll lögin á plötunni eru góð að mínu mati, grúvið er rosalegt og fílingurinn ekkert venjulegur. Besta plata ársins! Down - Down II: A Bustle In Your Hedgerow Rosaleg...
Þið eruð nú meiri djöfuls nöldurmellurnar. Slipknot eru ekkert verri en hvert annað band. Meira að segja talsvert góðir strákarnir að mínu mati. Öööööö Slipknot eru nu-metall…öööö boyband rokksins……öööööööö ég verð að vera real og hlusta bara á svíametal ööööö…..djöfuls tilgerð! Ef þið fílið ekki Slipknot þá skuluð þið bara hlusta á eitthvað annað.
Sammála þessu Ljónynju með hassið og ölvunina. Veit um alltof marga sem hafa séð fullt af geðveikum böndum og vita ekkert hvernig þau voru því þau voru útúr því allan tímann. Skrýtið hvað margir (ekki allir) Íslendingar virðast alltaf finna hjá sér þörf til að eyða öllum tónleikaferðum til útlanda í einhverri ofurölvun og móki. Miklu skemmtilegra að hafa öll skilningarvitin 100% virk… Það finnst mér allavega
Þetta er ekki allskostar rétt þar sem Nailbomb voru stofnaðir löngu áður en Max skildi við Sepultura (eða Sepultura skildi við Max). Held meira að segja að báðar plötur Nailbomb (“Point Blank” & “Proud to Commit a Commercial Suicide”) hafi komið út á undan Roots… Allavega önnur…
SLAYER ERU GEÐVEIKIR!!!! Fíla South of Heaven best…..svo sennilega Seasons in the Abyss. Diabolus er fín, God Hates Us All er betri, Divine er ágæt, Reign in Blood er klassík! S L A Y E R !!!
SLAYER gáfu út fína plötu í fyrra PANTERA eru ennþá góðir DOWN gáfu út GEÐVEIKA plötu í ár MESHUGGAH eru að fara að gefa út plötu CORROSION OF CONFORMITY eru að fara að gefa út plötu MEGADETH voru að gefa út live-plötu (og reyndar að hætta líka) CHRIS CORNELL/RATM-platan er á leiðinni METALLICA eru í stúdíói FOO FIGHTERS eru að gefa út nýja plötu TOOL gáfu út GEÐVEIKA plötu í fyrra TENACIOUS D voru að gefa út nokkuð sniðuga plötu (fyrir þá sem það fíla) KORN voru að gefa út betri plötu en...
Í fyrsta lagi er ekki rétt eins og einhver sagði hér fyrir ofan að Metallica hafi farið í mál við Napster OG notendur þess. Þeir urðu einungis þess valdandi að það var lokað fyrir aðgang þess. Það lenti enginn í fanglesi eða var látinn borga sekt…..þeir einu sem fengu málssókn voru napster sjálfir. Mjög pirrandi að heyra fólk segja að þeir hafi farið í mál við AÐDÁENDUR sína. Einu aðdáendurnir sem þeir fóru í mál við þarna voru Napster sjálfir (enda aðalgaurinn self-proclaimed Metallica...
Ég mæli með Power Metal plötunni (1988) fyrir alla sem fíla Cowboys og meika smá glam-söng. Fullt af geðveikum riffum og sólóið í “P.S.T.'88” er með flottari sólóum sem ég hef heyrt Dime taka! Hins vegar eru hinar 3 gömlu plöturnar (á undan Power Metal) ekki alveg að gera sig…..samt alveg kaflar hér og þar sem eru allt í lagi. Ef þið viljið hlæja dátt skuluð þið reyna að redda ykkur laginu “Biggest Part of Me” sem er (að ég held) á “Metal Magic”……væmnasta og viðbjóðslegasta lag sem ég hef...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..