Pantera fyrri hluti. Pantera var stofnuð árið 1983 af bræðrunum Vince og Darrell Abbot ásamt Rex Rocker og Terry Glaze. Seinna það ár þá gáfu þeir út fyrsu plötuna og hét hún “Metal Magic” hún var með frekar röff soundi en mjög góð miðað við það að meðalaldurinn í bandinu var 18 ár.
Á þessari plötu sóttu þeitr mikið til Kiss og Van Halen og voru það lög eins og “Ride My Rocket” og “Biggest Part Of Me”.

1984 gáfu þeir svo út aðra plötuna “Projects In The Jungle”.
Þessi plata sýndi að þeir höfðu mikla hæfileika og ættu eftir að ná langt. Þeim val líkt við Def Leppard með lögin “All Over Tonight” og “Heavy Metal Rules”. Meðan lög eins og “In Over My Head” og “Takin' My Life” sýndu frekari rólegri hliðarnar á Pantera.

1985 gáfu þeir svo úr þriðju plötuna sem hét “I Am The Night”
Hæfileikar þeirra uxu gífurlega og færðu þeir sig lengra í áttina að speed metal stefnunni. Lög eins og Titillagið sýndu greinilega Judas priest áhrif.

Frá 1985 og 1988 tóku þeir hlé frá tónlistinni og ákváðu að láta Terry hætta sem söngvara því að tónlistin þeirra var farin að verða þyngri og þurftu þeir að finna söngvara sem hentaði þeim. Þá fundu þeir Philip Anselmo. Þeim fannst hann henta vel fyrir nýju plötuna sem þeir gáfu út árið 1988 sem var kölluð “Power Metal” Meðan Phil lét ekki af hendi rakna við að semja textana, ötrúlega röddi hans gerði þessa plötu að bestu Pantera plötunni á þessum tíma. Með lögum eins og “Rock The World”, “Over And Out”, spedd-metal lagið “Power Metal” og rólegri lögin eins og “We'll Meet Again” og “Hard Ride”. Þessi plata var svo tilkomumikil að Dave Mustaine bað Darrell að koma í Megadeth en hann neitaði.

Árið 1990 gáfu þeir út plötu sem var kölluð “Cowboys from hell”
En þessi plata sýndi þessi “redneck” a´hrif eins og vinur minn orðaði það. Þar voru góð lög eins og “Cowboys from hell”, “Cementary Gates” og “Domination”.

Árið 1992 kom út “Vulgar display of power”
Sem var með þeim ótrúlegustu plötunum semþeir höfðu gefið út. Þar voru einmitt lögin “New Level”, “Walk”, og “Hollow”. Þessi lög eru mjög góð og sýndu hvað þeir voru góðir að semja.

Framhald…..
Unas Hath Taken Possession of the Hearts of the Gods.