Pantera fyrir lengra komna Eins og kannski margir hér vita er ég mikill aðdáandi Pantera. Þrátt fyrir það hef ég ekki þekkt til þeirra lengi (svona frá '99 sennilega) en á þeim stutta tíma hef ég kynnt mér þá mikið og á alla diskana (þ.e.a.s. alla frá CFH) og hef hlustað mikið á þá. Þetta eru nú ekki margir diskar og því hef ég líka fjárfest í báðum Down diskunum sem og Superjoint Ritual disknum. Nú eftir að ég fékk mér ADSL hef ég verið að teygja mig enn lengra og hef verið að downloada sjaldgæfum lögum með Pantera sem er ekki að finna á hverju strái, m.a. lögum af Projects in the jungle og Power metal :)

Hér koma svo lög sem menn geta tjekkað á þegar þeir vilja meiri Pantera!

Pantera - Hole in the sky (Black Sabbath cover, frábært live cover!)
Pantera - Mission Impossible, metal remix (slá Limp Bizkit rækilega við ;))
Pantera - Dallas Stars Fight Song
Pantera - The Badge (Cover, veit ekki frá hverjum, var á The Crow soundtrack)
Pantera - Cat Scratch Fever (Ted Nugent Cover, var á Detroit Rock City soundtrackinu, rokkaðari útgáfa af þessum gamla slagara)
Pantera - Immortally Insane (Cover eftir því sem ég kemst næst, veit ekki frá hverjum hins vegar)
Pantera - Avoid The Light (Dracula 2000 soundtrack)
Pantera - Kill All The White People (Live, Type-0-negative cover)
Pantera & Jason Newsted - Seek and Destroy (Metallica Cover, live og ekki í góðum gæðum)
Pantera - Whiplash (Metallica Cover, live)
Pantera - Refuse/Resist (Sepultura cover, stutt (um mínúta), live, og gæðin hræðileg)
Pantera - Purple Haze (Hendrix cover, live)
Pantera - Cold Gin (Kiss cover, live, mér hefur ekki enn tekist að ná í það :()
Einnig eru til einhver cover með þeim af Slayer lögum.

Svo eru nokkur lög sem eru skráð á Pantera (eða öfugt) en fólk virðist ekki alveg vera að þekkja flytjendurna…

Pantera & Rob Halford (Judas priest), ultra rare - Ekkert nafn á laginu, Anselmo syngur ekkert en kannski spilar Pantera undir?
Pantera - Electric Funeral (Black Sabbath cover, en þegar lagið kemur í Winamp kemur í ljós að þarna eru Megadeath á ferð…)
Fear Factory - Becoming (Þetta er einfaldlega bara Pantera…)
Disturbed - Walk (Pantera Cover, live, engin breyting nema söngurinn, frekar slappt)
Pantera - Killers (ég heyri nú ekki betur en þarna séu bara Iron Maiden sjálfir á ferð, kannski skjátlast mér)

Sennilega eru til fleiri svona sem ég hef annað hvort gleymt eða þekki ekki, endilega bætið við!
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _