Þetta er samið til fallegustu og yndislegustu stelpu í heimi:

Hún hefur svo mjúkt og fallegt hár,
hún hefur svo lítið sætt nef,
ég ræð ekki við það, ég felli tár,
og ást mína henni ég gef,

Hún er svo fögur og fríð að sjá,
hún hefur svo mikinn kynþokka,
ég hana mun alltaf dýrka og dá,
því hún er mig stöðugt að lokka.

Hún hefur svo fallegt göngulag,
hún hefur svo fallega fingur,
hún kann allra kvenna best sitt fag,
þegar hún fyrir mig syngur.

Ef væri ég elskunni minni hjá,
ég léti hana aldeilis finna,
að bráðum fengi hún að sjá,
hve margt hún hefur að vinna.

Hún hefur það allt sem ég óska mér,
mig langar svo við hana að stjana,
svo mikla ást hún gefur af sér,
engillinn minn, hún Svana ;*
“Hættu að horfa á fingurinn, horfðu þangað sem hann bendir”