Húrra fyrir lífinu
sem leikur mig grátt.
Ef ég leita hamingjunnar
mun ég finna fátt?

Húrra fyrir blóðinu
sem rennur frá mér.
Sérð þú ekki sársaukann
í augum mér?

Húrra fyri hjartanu
sem ærist brjósti í.
Ætli ég geti nokkurn tímann
stjórnað því?

Húrra fyrir sálinni
sem horfin er á braut.
Tapaði ég henni ráðandi
lífsins þraut?

Húrra fyrir drottni
sem situr á höndum sér.
Ætlaru að lofa grimdinni
að ganga frá mér?

Húrra fyrir gröfinni
sem ég hvílist nú í.
Er ég á leið til helvítis
enn á ný?