Sæl Gróa og takk fyrir að taka þér tíma til að svara. Ég pantaði reyndar ól frá USA, en hún var stoppuð í tollinum. Það var ekki af því að hún væri ólögleg eða neitt svoleiðis, heldur sú einfalda ástæða að fjarstýringin var ekki CE merkt. Að öðru leyti allt í góðu. Já, ég er ekki að leita að svona tæki til að kvelja, heldur þjálfa og þá eins og þú segir, kemur svona titringur sér æðislega vel. Að öllum líkindum skelli ég mér á eina svona út af þessum titrara. En segðu mér, er ólin þín eða...