Eruð þið viss um að það hafi verið að handrukka þá? Það þarf ekki meira til hjá þessum ræflum en að segja eitthvað móðgandi við þá. Þetta eru svo litlir menn að þeir verða að svara með hnefanum því þeir kunna ekki að tjá sig rétt. Svo er það líka svo fyndið að þegar svona klíka tekur sig til og tekur einhvern svona fyrir eru það oftast höfuðpaurar klíkunnar sem koma þessu af stað, en eru svo mestu kjúklingarnir þegar kemur að áflogunum og standa bara og horfa á. Það eru þessir strákar, sem...