Í gærkveldi fór ég með vinkonu minni í Smárabíó, sem er ekki frásögu færandi, nema hvað að þegar við erum að labba út í bíl eftir sýninguna, heyri ég að einhver strákur kallar “slagur” og þá verður maður forvitinn.
Þá lítum við í kringum okkur og sjáum á milli bíla þarna á bílaplaninu uppi, eru 7-8 strákar að lúberja 2 stráka. Og þetta voru hrottalegustu áflog sem ég hef séð með berum augum og er ég nú orðin 25 ára. Ég er að tala um að þeir lömdu og spörkuðu og spörkuðu í strákana tvo, kýldu í magann á þeim og spörkuðu í hausinn á þeim á meðan að þeir voru að reyna að komast inní bílinn sinn. Ekki nóg með það heldur spörkuðu þeir í bílinn líka. Svo rétt svo náði strákurinn sem var að keyra að bakka úr stæðinu og forða sér. Bíllinn var algjörlega í klessu og hann gat ekki lokað hurðinni því hún var svo beygluð og hann blóðugur í framan. Þetta var hreint út sagt viðbjóður að horfa uppá þetta og maður fer ekki að blanda sér í svona mál.

Nú veit ég ekki afhverju þessi slagsmál voru en hvað er að fólki?? Hvernig er hægt að vera svona rosalega grimmur og illa innrættur til að geta sparka í höfuðið á manni? Og 7-8 á móti 2, það er ekki sanngjarnt. Maður hefur heyrt svo margar sögur um svona, t.d. 16 ára stelpa sem var lamin af þremur stelpum hérna fyrir ca. 10 árum, hún er í hjólastól í dag og getur ekki tjáð sig, líf hennar var eyðilagt í svona slagsmálum.

Ég bara varð að deila þessu með ykkur, sé alltaf þessu reiðu ungu stráka fyrir mér og fæ alveg í magann.
Hvað er málið? Er þetta orðið svona í dag, að fólk sé að ráðast á hvort annað á bílaplani þegar bjart er og fullt af fólki að labba í kring?
Endilega komið með einhver álit á þetta!