Var á mbl.is og sá þessa frétt…

——————————————- ——-

Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann í 18 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn ungri stjúpdóttur sinni og til að greiða stúlkunni 1 milljón króna í miskabætur.

Maðurinn smitaði stúlkuna af tveimur kynsjúkdómum og var talið sannað að hann hafi komið við kynfæri hennar með lim sínum þótt ekki hafi verið um eiginlegar samfarir að ræða. Sálfræðingur sem skoðaði stúlkuna segir að ætla megi að hún muni eiga við langvinnan vanda að etja vegna misnotkunarinnar sem hún varð fyrir og óvíst hvort hún nái sér að fullu.

Maðurinn bar fyrir dómi að umrædd kynferðismök hafi verið að frumkvæði stúlkunnar sem hafi hafið þau að honum sofandi og hann vaknað við að þau væru hafin. Þessari staðhæfingu hafnaði dómarinn og segir að slá megi því föstu að maðurinn hafi átt allt frumkvæði að þeim og stýrt þeim að öllu leyti.
————————————————–

Alveg sama hve oft ég sé svona fréttir ég bara átta mig ekki á þessu. Erum við mannkynið bara orðið svona úrkynjað fyrst það er svona óendanlega mikið af klikkuðu fólki ??

Hvar sem maður lítur þá eru morð/nauðganir/ofbeldi og ég veit ekki hvað og hvað.

Að fólk skuli geta gert þetta !!!!!!!

Ég get bara ekki að því gert að skammst mín fyrir að vera mannvera þegar ég sé svona fréttir.

Ætli þetta hafi ekki komist upp út af því að hún smitaðist ?? Það stendur nú reyndar ekkert um það en mér finnst það ekki ólíklegt..

Hugsa sér að verða ástfanginn af manni og komast svo að hvernig hann er innrættur.

Mér finnst 18 mánaða fangelsi ekki nærri því nóg og ef ég þekki þetta réttarkerfi rétt þá sleppur hann eflaust með mikið styttri dóm.

Mér finnst að það ætti að birta nöfn og myndir svona manna svo fólk viti hverjir þetta eru og geti haldið börnunum sínum frá þeim og forðað sér jafnvel frá því að stofna samband við svona menn !!