Ég hef tekið eftir því í langan tíma hvað margir jafnaðarmenn, samt ekki allir eru oft með hinar ótrúlegustu kenningar um hin ýmsu mál og eru oft hættulegir öfgamenn og sumir trúa því hreinlega að hvítir menn séu þeir einu sem eru vondir og rasistar. Sjálfur styð ég Samfylkinguna og er jafnaðarmaður en finnst þessi vitleysa þeirra sem oft eru á móti rasisma oft vera hlægileg, sumir vilja banna öðrum að tala, sumir trú því að öll gagnrýni sem beinist gegn gyðingum sé rasismi og sumir trúa því að allar ófarir annara kynstofna séu hvítum að kenna líkt(ég er núna ansi mikið að vitna í Ritter sem oft skrifar hér enda hef ég lesið mörg bréf eftir hann hér).

Fyrir nokkru síðan skáldaði ég upp persónu hér sem hét vilmar og hugmyndina að því fékk ég eftir að hafa lesið nokkrar greinar sem ég fann á netinu um innflytjendamál þar sem oftar en ekki komu fram MJÖG öfgafull sjónarmið, oftast frá jafnaðarmönnum. vilmar var persóna sem var sköpuð með sjónarmið úr þessum greinum í huga og var hann byggður upp á þeim með ýmsu spin-outi sem ég gerði sjálfur. vilmar kenndi hvítum um allar ófarir annara kynstofna og taldi hann þá orsök alls ills í heiminum, hann taldi útlendinga merkilegri en Íslendinga, hann sagði alla kynstofna jafna án þess að hafa kynnt sér það mál, allir sem vildu ekki ótakmarkaðan fjölda innflytjenda til landsins voru rasistar að hans mati, Íslenski fáninn var einnig rasismi að hans mati sem og öll þjóðerniskennd.

Ég hef ósjaldan tekið eftir svona asnalegum sjónarmiðum og öfgakenndum eins og vilmar hafði uppi t.d. þegar ég hitti meðlimi Heimsþorps eitt sinn, þeir voru vægast sagt fasistar af verstu gerð sem vildu gefa allan innflutning til landsins frjálsan og töluðu í þeim tón að meira gaman væri að hafa litaða á landinu en hvíta og best væri að hafa litaða á landinu sem flesta, þeir töluðu einnig um flokk framfarasinna sem rasistaflokk og margt fleira, þeir vildu einnig auka erlend áhrif í landinu til muna og töldu hvíta manninn ábyrgan fyrir öllu illu.

Ég hef í dag lesið grein nokkurs manns sem kallar sig peace4all og nafn hans er ekki við hæfi! þetta er einn sá alversti rasisti sem ég hef vitað um og hatur hans gegn aröbum er bara fáránlegt. Þessi maður telur gyðinga eiga rétt á öllu, sama hvað það er og hann svarar varla þeim spurningum sem lagðar eru fyrir hann ef að þær eru erfiðar. Allir eru rasistar fyrir þessum manni, sem ekki samþykkja hans skoðanir og meir að segja er ég rasisti að hans mati!

“Ungur rasisti sem kann ekki við málflutning minn segir hvað við jafnaðarmenn geta verið öfgafullir á köflum?? hvað með ykkur nasistana? eruð þið ekki öfgafullir? Við viljum banna það sem ekki samræmist landslögum og er óhollt fólki já en annað ekki.”

Þetta er svarið sem ég fékk frá honum áðan, aldeilis málefnalegt eða þannig! Ég var reyndar búinn að vera að fíflast í honum í dáldinn tíma, herma eftir honum og svara í hans stíl en bara enn opinskáara en hann gerði t.d. lék ég eftir svörum frá honum með þessu svari hér:

“Áfram gyðingar!! Sendum skriðdrekana inn og drepum alla vonu og illgjörnu arabana án þess að gefa þeim tækifæri til að verja sig. Gyðingar mega gera hvað sem er af því að þeir voru einu sinni ofsóttir og allt bara til þess að banna aröbum að búa í eigin landi. Það er hins vegar rasismi þegar Íslendingar vilja bara hafa Íslendinga hér á landi að mati mínu en allt í lagi þegar gyðingar vilja bara hafa gyðinga í Ísrael. Það er heldur ekki rasismi að gyðingar telji sig merkilegri en aðra en ef að hvítir menn gera það er það nasismi, rasismi, kynþáttahatur, fordómar, fáfræði og heimska en það er bara satt hjá gyðingunum samt, þeir eru merkilegri en aðrir.

Allir segja: Gyðingar eru bestir!! húrra, húrra

kveðja peace4nonebutjews”

Þegar ég hermdi eftir spurningu sem var borin á borð fyrir hann sagði ég:

“Ég hef kynnt mér þessi mál mjög vel og hef dæmt út frá því og er fullfær um það.”

Eftir smátíma kom peace4all og sagði eftirfarandi:

“Trjási minn, það er alveg óþarfi að vera að herma eftir mínum líklegustu svörum. Hver er annars maðurinn?”

Þar var hann að tala um að ég hefði bara svarað vel fyrir hönd hans og að hann væri fullfær um að dæma heilan hóp araba út frá smá þekkingu um þá.

Eftir þetta hafa mér borist leiðindaskeyti frá peace4all þar sem hann talar um að ég eigi að biðja hann opinberlega afsökunar á einhverju sem ég hafði sagt sem kom sér illa fyrir hann, annars myndi hann klaga mig í stjórnendur huga og láta banna mig frá vefsvæðinu fyrir rasisma.

Fólk virðist ekkert vera sammála þessum manni á neinn hátt og hann svarar alltaf með sama bullinu aftur og aftur, ég man eftir einum manni sem hélt uppi svipuðum málflutningi og peace4all en hann hét Snorri og kom nokkrum sinnum í Moggann og lýsti stuðningi sínum við stefnu gyðinga á mjög ósannfærandi máta enda er á mjög lélegum grunni að byggja ef maður ætlar að verja þessa rasista stefnu Ísraelsstjórnar. Þegar honum bárust svarbréf svaraði hann þeim alltaf með sömu lummunum úr upprunalegu grein sinni. Mér finnst ekki ólíklegt að þessi peace4all sé þessi Snorri eða þá einhver trúarbrjálæðingurinn úr Omega sem lýsti eitt sinn yfir því á stöð 2 hvað arabar væru vondir og gyðingar góðir, mönnunum sem komu í þennan þátt þóttu líka gyðingarnir alveg fullkomnir og stefna þeirra eftir því.

Ég fékk ein skilaboð þar sem ég var spurður að því hvort að ég væri búinn að skapa þessa persónu, peace4all, líkt og ég skapaði vilmar eða hvort hann væri “real”. Ég skapaði EKKI peace4all en það getur samt vel verið að einhver hafi apað eftir mér vilmarsdjókið og búið til álíka persónu.