Það hefur væntanlega verið á handtíma? Þ.e.a.s skeiðklukku. Hver tók tímann, þjálfarinn eða þú? Málið er að 10,5 myndi nefnilega þýða nýtt Íslandsmet. Íslandsmet Jón Arnars er 10,56 sek. Það þykir ferlega gott á Íslandi að komast undir 11 sekúndur. 11,lágt þýðir að þú ert í topp baráttu. Ég held að tímatakan hafi eitthvað klikkað eða að þetta hafi ekki ferið fullir 100 metrar. Eins og ég segi, skv. þessum tíma varstu að hlaupa undir Íslandsmeti.