Þú þarft að skokka lengur en 10-15 mínútur ef þú vilt fara að ganga á fituforðann af einhverju ráði. Ég mæli með allavega hálftíma, 3-4 sinnum í viku. Best er að fara út að hlaupa strax á morgnanna, fyrir morgunmat. Þá gengurðu beint á fituforðann þar sem að þú ert ekki með neina næringu i líkamanum til að brenna. Svo kæmi sér ekki illa að fara í líkamsrækt 3 sinnum í viku, vöðvar brenna orku allan sólarhringinn, líka í hvíld.