Til sölu Honda Civic 1500 árgerð 1998.

Litur: Ljósblár
Ekinn: 177.000km
Vél: 1500 V-Tech
Beinskiptur
Þriggja dyra

Bílinn er með nýja tímareim og nýbúið er að skipta um bremsudiska og klossa að framan. Það eru nánast ónotuð heilsársdekk undir bílnum. Pioneer CD-RW/MP3 spilari fylgir með. Tveir eigendur frá upphafi.

Það eru filmur í bílnum og breyttur endi á púströri.

Bílinn þarfnast smá lagfæringa. Ég fór með hann í skoðun og fékk endurskoðun í mars út af fjórum atriðum:

- Númersljós biluð (skiptir ekki miklu máli)
- Smá rifa á öxulhosu
- Stilling á aðalljósum
- Ein spindilkúla að fara.

Einnig er rúðan bílstjóramegin föst og bílinn er örlítið beyglaður á hlið farþegamegin.

Fyrir utan þetta er bílinn í mjög góðu lagi og það er mjög gott að keyra hann.

Hann hefur verið smurður reglulega frá upphafi, þjónustubók fylgir.

Bíllinn selst í núverandi ástandi.

Myndir:
http://i273.photobucket.com/albums/jj239/kriistjanm/Honda002.jpg
http://i273.photobucket.com/albums/jj239/kriistjanm/Honda001.jpg

Ásett verð: 170.000

Hægt er að ná í mig í síma 693-9246. Ég er staddur í Reykjavík.

Bíllinn er tilbúinn til afhendingar