Það versta var hroðaleg misnotkun, þar sem stúlka var geymd inni í herbergi hjá sér, fékk aldrei að líta dagsins ljós og var fóðruð á afgöngum og hundamat, auk þess sem hún var lamin eins og dýr, alveg miskunnarlaust. Þetta stóð langt fram á unglingsár, og aumingja stelpan var líkari hræddu dýri en manneksju eftir ‘uppeldið’. Það sem var þó bót í máli var að þetta olli miklu fjaðrafoki þegar það komst upp, og fékk yfirvöld til að taka sig mjög á í þessum málum.