Ekki fara eftir þyngd, svo margt sem getur spilað inní, beinabygging, vöðvar eru náttúrulega þyngri en fita og fl. + það að ég get nú ekki sagt að 64 kíló sé of þungt fyrir tæplega 170cm stelpu. En já, besta leiðin til að missa fitu er að laga mataræðið, ég er líka fíkill í góðan mat en ég reyni að takmarka nammiátið við einu sinni í viku. Allt í lagi að svindla smá af og til ef þú ert með gott mataræði :)