Ég held að málið sé að flestar ömmur, frænkur, mömmur o.s.frv. séu með einhverja uppskrift að fullkomnu lífi og hún hljóðar svo. Framhaldsskóli, háskóli, kærasti/eiginmaður, brúðkaup, hús, bíll, börn…eða ég hef þetta á tilfinningunni oft. Maður er einhvernveginn ekki alveg nógu góður ef maður fetar ekki þessa beinu braut. Þetta gæti líka verið einhver löngun í lítil ömmubörn/frændsystkini eða jafnvel “hræðsla” við að þú sért lesbísk. Mér persónulega finnst samt að þetta sé eitthvað sem...