Þessi skoðanakönnun er frekar áhugaverð. Nú þegar ég skrifa þetta hafa 106 atkvæði komið. Og eins og við vitum eru Monica og Chandler í sambandi. 44 hafa kosið Chandler en aðeins einn hefur kosið Monicu. Eru ekki bara allir sammála mér því að Monica hefur versnað með þáttunum. Orðin svona svolítið leiðinlegur karakter, oft mjög hávær og með leiðinleg comment, oft svolítil frekja og vill fá sínuframgengt og hefur enga sérstaka takta eins og flestir hinir. Hvernig ætli standi á þessu að Monica sé orðin mun óvinsælli en hún var fyrir nokkrum árum.