Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Laugardagsnótt (1 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Sólargeislar sígarettna og blóði drifin athygli. Áfengisandinn tár á bakvið trúðsgrímuna, í andlausum eltingarleik sem endar í pípulögnum. Okkur var ætlað að vera eitthvað meira en þetta.

Ég og þú og allir hinir, samt aðallega þú. (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Mér leiðist þessi upptalning Líkami Eftir líkama Eltumst í hringi, smurð af gerviþörfum okkar Miðstöðvarnar í hjörtum okkar hafa bilað og ég veit að ég sé þig ekki aftur. Þó getur biðin eftir því sem ekki kemur Verið þess virði

Vöknun (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Út af hverju er ein stjarna þarna uppi. Fest með tyggjói. Var hún þarna í gær? Er grasið orðið enn grænna og litríkara? Silki. Hjá ykkur vil ég liggja áfram og ljóstillífa drauma okkar.

Afsökun (2 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Komdu inn á skrifstofu mína Hringleikahús Salerni Og felldu nokkur munnleg tár. Og þú nærð Í gegn.

Neighbours (0 álit)

í Sápur fyrir 19 árum, 8 mánuðum
þarna er hann Lou litli, aðeins yngri, 7 ára öllu heldur.

Neighbours (0 álit)

í Sápur fyrir 19 árum, 8 mánuðum
hefur þessi maður breyst eða hvað?

Ítalski boltinn (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
snillingurinn Roberto Baggio að spila með Brescia. Hann í ítalska landsliðið

Fugl og Fiskur (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Þú ert fugl og í augum þínum hvílist forn fegurð í friði frá heimsins fári. Ó, ósköp ertu falleg. Þú hefur fært mér himininn, sem var mér áður svo fjarlægur úr glerbúri Og þó ég muni vísast gleyma þér innan 15sekúndna bugast hjarta mitt við þá tilhugsun að ég muni aldrei sameinast tér á himninum, milli skýjanna.

Bylting Hugans (2 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Í draumum mínum dansar þú fyrir lokuðum augum Þú kitlar augnlok sem vilja aldrei opnast heldur halda sig við þig eina. Þú ert haltu mér/slepptu mér týpan, nýtur athygli minnar Þó ekki jafn og þú nýtur þess að kitla augnlokin til að sjá hvort ég muni opna þau og hætta að sjá… þig. Og auðblekktur hugurinn krafsar sig áfram í áttina að hinum einstaka kossi (ef ég kyssi þig þarna, á hugans víðlendum, berskjaldaður fyrir sjálfum mér, þá þýðir það að við munum aldrei kyssast í raun, en ef ég kyssi...

Fyrsti Kossinn (3 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 1 mánuði
Við höfðum lengi þráð. Fylgst með augum löngunar og forvitni glitra okkar á milli. Daðrið vængjum þanið fiðrildi. Og loksins kom að því: Þó maður hafi dýft fótunum ofan í baðkerið og aðlagað sig sælunni, hitanum baðvatnsins þá jafnast aldrei neitt við það, eða breytir unaðnum, hitanum og þegar maður dýfir öllum líkamanum ofan í baðið. Og maður getur ekki annað en lokað augunum og notið þessa augnabliks; augnablikið þar sem allar áhyggjur hverfa og breytast í rómantísk norðurljós.

Heimleiðin (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 1 mánuði
Erum við að hverfa til gamlra leiða, forna tára? Erum við búin að gefast upp á nútímasögunni fyrirfram? Á ég mér þá engrar undankomu auðið, fastur í fyrirfram ákveðnum hlekkjum? Ég vona ekki, en hver veit? Ég hef nú vissulega áður kysst fortíðarinnar heimsku og verið táldreginn af hugmyndafræðinni einni.

FIFA2004 (2 álit)

í Grafísk hönnun fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Getur einhver sagt mér hvaða takkar standa fyrir hvað í Fifa 2004? í PC.

______________ “I know you've come to kill me. Shoot, coward, you're only going to kill a man.” -Che Guevara, Oct. 9, 1967.

FIFA2004 (0 álit)

í Tölvur og tækni (gamla) fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Getur einhver sagt mér hvaða takkar standa fyrir hvað í Fifa 2004? í PC.

______________ “I know you've come to kill me. Shoot, coward, you're only going to kill a man.” -Che Guevara, Oct. 9, 1967.

FIFA2004 (0 álit)

í Tölvur og tækni (gamla) fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Getur einhver sagt mér hvaða takkar standa fyrir hvað í Fifa 2004? í PC.

______________ “I know you've come to kill me. Shoot, coward, you're only going to kill a man.” -Che Guevara, Oct. 9, 1967.

FIFA 2004 (8 álit)

í Hugi fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Getur einhver sagt mér hvaða takkar standa fyrir hvað í Fifa 2004? í PC.

______________ “I know you've come to kill me. Shoot, coward, you're only going to kill a man.” -Che Guevara, Oct. 9, 1967.

Æskustund (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég var barn augnabliksins, með rennt fyrir augun en opin eyrun Eyru sem að vildu tala og voru mjög mótfallin hlutverki sínu að hlusta En einu sinni áttu þau skemmtilega stund við að hlusta við vorum að hlusta á þig í fyrsta skiptið manstu? nei nei, þú manst ekki, enda vissirðu ekki af mér inn í hurðinni Þú varst að suða um fegurð snjókorna sem að þjóta um og lenda aldrei, bráðna í loftinu, sannkallaðir farfuglar. Það fannst þeim hlægilegt að hlusta á. Þau skyldu líklega ekki alvarleika málsins.

Móðurást (1 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ást þín skín í gegnum gluggatjöldin mín, ég kem engum vörnum við varnarlaus Þó ég hafi lengi reynt að fela mig í skuggum ótímabærra breytinga Óvelkomin þroskun Þá hættir ást þín aldrei að skína þó ég sjái geislana stundum Og hún jafnvel skín í gegnum gluggatjöldin mín Skín.

Maraþon tilfinninga (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þú kramdir draum minn Um blátt hafið Sem þarfnaðist míns innilega faðmlags Á meðan ég ligg hérna Hjá þér naktri Skil ég að ferðin er óþörf Þú bregst mér aldrei Þó ég vilji Þig beygja og móta barnslega Þú étur allar tilfinningar mínar Og snýrð vonbrigðum Yfir í blóm og bros Ég sit hér hugsandi Um aðeins þig Og velti huganum Í tóma hringi og táknræn orð

Á dánarbeði (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Steinninn hélt mér ósýnilegum höndum hélt mér heljarböndum Engin var undankomuleiðin ófærð var heiðin Eins og sjón frá sjáanda fer sjórinn fjarlægðist mér Ég bjargarlaus og barinn var og bjartur guð: hann var þar Ég brosti honum björtum að og bjáninn spurði: hvað er að? Svarið var stutt og gott Sérðu ekki, ég dey í nótt Þá brosti hann bjáninn sá ,,Barnið mitt, þú ferð til himna þá" En það var ekki satt englanna vegi af ég datt Og minningar nú allar slást og breytast í drauma sem að þjást

Píslarvætturinn (3 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Mitt draumahlutverk hefur alltaf verið píslarvætturinn en í leikriti lífsins hef ég neglt mig sjálfur krossinn við og ég dey fyrir eitthvað ómerkilegt sem aldrei var og þið vitið það. Í stað þess að dá mig sem píslarvætt, sem merkan mann með drauma og vonir, dáiði mig orðlaus fyrir blinda heimsku mína.

Fyrir frið (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Fyrir frið Ég myndi glaður lifa -án snillinga og stjórnmála -án menningar og velmegunar -án tækni og tóla Bara fyrir frið á jörð Ég myndi glaður berjast gegn drekum heimsins. Og glaður þegja, þó ég hefði sitthvað merkilegt að segja. Glaður myndi ég synda á móti köldum straum. Og glaður myndi ég deyja, ef ég fengi einungis ein lítil laun Bara frið á jörð

Gleraugu (3 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Gleraugu segja margt um menn mín eru skökk og skítug, falleg en flókin, hjálpandi en heil og helvíti stundum fitug Brotnuðu samt einu sinni skrítin hafa verið síðan blessuð hafa bjargað mér að sjá veðursins blíðan En hvað með þá sem þurfa ekki gleraugu? þjást þeir af gallaleysi?

Saga Karlsins í Tunglinu (1 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Í nótt vil ég myrða þig og hina Því andlit ykkar eru svört og hæðin Elta mig í sífellu Hrópa þá að mér hákarlar, varðhundar ykkar Og ég æli þungum hníf á flótta Hjól örlaga minna er bremsulaust Og brátt fer ég í sjóinn Ólíklegt þykir að hjólið verði að bát Ég verð þá einfaldlega að reyna að fljúga Á meðan lygar umkringja höfuð mitt Eins og sígarettureykur Smýgur innum eyrun og augun Og þið hóstið lygahóstanum Hærra og hærra og hærra Ég er ykkar öskubakki Ég held nú hnífnum mér nærri En hann...

Í helvíti á jörðu? (5 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ef ég færi til helvítis á jörðu myndi heimurinn samt litast af minningum um þig og vanilludropar augna fullra af söknuði myndu fylla göngustíga heljar og fljótt myndu púkar huga okkar drukkna í flóði væntumþykju Ég myndi stökkva fyrir bíla fulla af myrkri bílstjórarnir kúgaðir af söknuði eins og ég en þeir gætu aldrei tekið handbremsubeygju frá óhamingju yfir til sannrar gleði Ég gæti það, ekki fyrir sjálfan mig ég hef aldrei verið nægilega fullur sjálfdýrkunar en ég gæti það fyrir þig

...Aðeins þú (1 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Er ég fastur í viðjum vanans, hefur hversdagurinn gróið við mig og bundið mig rótum? Nei, ekki samkvæmt þér eða augunum í huga mér nei, samkvæmt ykkur skríða köngulær hugarflæðis míns hraðar og hraðar Í gegnum absúrdískan huga minn Þær vilja komast út úr höfuðkúpu minni reyna að skríða út um augun Og hægt tyggja þær hugsanir mínar, eina og eina hrækja þeim út úr sér og sjá hugsanirnar blómstra sem fallegustu liljur Það hræðir mig Því ligg ég hér og hvílist í vanmætti á rúmi sem er alltaf að...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok