Já. Í þau skipti sem ég hef asnast niður í bæ á ‘djamm tímanum’ hefur mér fundist menn vera alveg hrikalega uppteknir við að vernda eitthvað ‘egó’ sem þeir þykjast hafa rosalega mikið af, og eru þessvegna að ráðast á hvorn annan og saklaust fólk af minnsta tilefni.
Þarft að sýna honum að það sé í lagi… og er alltaf að kyssa mig og knúsa, segja mér hvað hann elski mig mikið, finnist ég æðislega og bara allt. Og það er svo yndislegt.Pff… þú verður síðan þreytt á því. Heh.
Já, nokkuð til í því. Annars upplifi ég mig tæpast öruggan niðrí bæ. Hef rosalega oft lent í einhverjum leiðindum, þó ég telji mig mjög friðsaman. Kannski er ég bara svona ‘gott’ skotmark? Alveg hættur að láta sjá mig niðrí miðbæ rvk á föstudags- eða laugardagskvöldum. :P
Æji, það er bara svo gaman að kenna bandaríkjunum um allt. Síðan getur maður sagt að það sé Bush að kenna, hann er jú forsetinn þarna hinumegin. Síðan, ef maður vill, getur maður farið með það alla leið og farið að prédika um illuminati.
Af því verður ekki skafið, stærðarinnar vömbin er stærri en sjálft hafið, þó leikur hann við lömbin. arr.. orðið frekar þunnt þarna. Má þó líta á þetta sem dulbúning. Spurning hvort við ættum að færa okkur yfir á /kynlif18+, eða allavega /kynlif? hahahaha En annars er það ‘n’. Það sem mér finnst samt dónalegast við þetta er hvað við erum að misþyrma öllum reglum um kveðskap. :P
Sniðugt. Ég nota nánast alltaf Av eða Tv, nema þegar ég ætla að undir/yfirlýsa um meira en 2 stopp, já eða eitthvað annað sem krefst þess að hlutirnir stilli sig ekki í leyfisleysi. Langar svolítið í einhverja af nýju pentax dSLR vélunum, þær eru með svolítið skemmtilega stillingu sem heitir TAv (eða var það ATv?) þar sem vélin stillir síðan bara ISOið til að breyta lýsingunni.
Já, það er frekar spes. Annars hefur portrait stillingin veit ég t.d. áhrif á parameters, sem maður væri lítið að stilla annars sjálfur ef maður væri að nota M (já eða Av eða Tv). Allavega ekki ég.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..