http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1282822;rss=1
Um helgina (27.-29. júlí) voru TÓLF líkamsárásir tilkynntar, auk þess sem maður var SKOTINN með riffli. Hve margar líkamsárásir og önnur ofbeldisverk ætli hafi ekki verið tilkynnt?

Hvað er að gerast? Finnst okkur þetta í lagi?
Er Ísland að verða svo mikið menningarlegt útsæði bandaríkjanna að okkur finnst sjálfsagt að lemja næsta mann ef hann fer eitthvað í taugarnar á manni, já eða SKJÓTA hann einfaldlega þegar hann byrjar með fyrrverandi kærustu manns?
Er Ísland að verða svo mikið menningarlegt útsæði bandaríkjanna að okkur er SAMA þegar náungi okkar liggur á jörðinni og fjöldi manns stendur yfir honum og lætur höggin dynja?
Þekkjum við ekki rétt frá röngu???
Finnst okkur við vera ÖRUGG niðrí bæ?

Er rómantíkin um hið friðsæla Ísland bara kjaftæði?