Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Vantar ísskáp og þvottavél!! (0 álit)

í Heimilið fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Við óskum eftir notaðri þvottavél og ísskáp(með/án frysti) sem er ekki breiðari en 60 cm. S 6908526 Gréta

Vantar íbúð á leigu á höfuðborgarsvæðinu!!! (0 álit)

í Heimilið fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Við erum par sem vantar alveg rosalega einhverja íbúð. Erum einnig með meðalstóran hund sem geltir ekki og er ofboðslega rólegur. Við erum að leita að einhverju upp að 3ja herbergja og helst með sérinngangi. Allt kemur til greina, við erum orðin virkilega örvæntingafull!!

Rottweiler (2 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Elsku hugarar Ég er alveg ofboðslega hrifin að rottweiler kyninu og núna undanfarið hef ég virkilega verið að íhuga það að fá mér einn slíkan en þá helst tík. Ég er með hund fyrir eins og sennilega flest ykkar vita, rétt tæplega 3ja ára boxer (Tító). En allavega… vandamálið er það að ég veit ekki um nein got á næstunni eða hvaða ræktanir eru með þesa tegund svo ég var að vona að þið gætuð kannski hjálpað mér. =) Með fyrirfram þökk Gréta og Tító

"Besta jólagjöfin" (17 álit)

í Kettir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Elsku hugarar. Hann er 13 ára kisuló ( Mikki ) og hefur alltaf getað farið inn og út eins og honum hefur hentað, þannig hefur það verið síðan hann var bara smá kettlingur. Mamma flutti hingað til Rvk snemma í haust þar sem þau pabbi voru að skilja og Mikki auðvitað fylgdi henni. Fyrstu 2 vikurnar ca, hleyptum við honum ekkert út á meðan hann var að venjast nýju húsnæði svo fórum við að hleypa honum smátt og smátt út og undir það síðasta hefur hann farið út einu sinni á dag en hann kemur...

Vor á götunni (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Vor á götunni Yfir malbikið svarta svífa dansléttir fætur á silfurlitum skóm. Í garðsins beðum vorið enn hefur vakið hin viðkvæmu blom. Hver dagur sem rennur er töfrandi tónn í tímans eiífa hljóm. Og fætur sem dansa leggja ást sína og yndi í hvert einasta spor. Þær syngja við malbikið svarta á heitum degi um sólskin og vor og töfrandi drauma sem fallast í faðma við framtak og þor. Og stúlkan sem gengur um strætið á heiðnum degi stuttklippt og frjáls með lokka sem falla lausir í sunnanblænum...

Hamingjufley (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Hamingjufley Um djúpbláa voga, þegar deginum hallar dansa skugganna bönd yfir kyrrlátan sæ. Og andvarans fingur vekja geislandi gárur og það glittir í ljós yfir vakandi bæ. Í gleðinnar örmum vakir söngvanna seiður og sorgirnar týnast út í vorljósið bjart. Um djúpbláa voga undir sólgullnum seglum sigla daganna fley klædd í ljómandi skart. Pétur Aðalsteinsson frá Stóru-Borg

Barn að leik (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Barn að leik Einn, tveir, einn, tveir. Smáir fætur tipla og troða mold og leir. Lítil stúlka leikur sér, léttan fót um völlinn ber. Undur glöð hún unir sér við anganblóm og reyr. Sæl ert þú með bros á brá barnið mitt unga og þrá. Ljóma augun blíð og blá sem brosi morgunsól. Ofan í laut og upp á hól ofurlítinn rauðan kjól sé ég skjótast, skjótast til og frá. Heyri ég óma hlátrasköll. Heyri ég þín gleðiköll. Byggðu þér glæsta háa höll úr heitri æskuþrá. Einn, tveir, einn, tveir. Smáir fætur...

Ljáðu mér eld (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ljáðu mér eld Ljáðu mér eld þinnar lífsglöðu sálar að leysa minn vanda í dag. Sendu mér skeyti í ósögðum orðum svo aukist við gleðinnar brag. Talaðu við mig á tungu sem enginn temur sér líkt eins og þú. Hvíslaðu að mér þeim ljúfustu ljóðum sem leynast í huga þér nú. Gefðu mér von sem er fleyg eins og fuglinn og færir mér hamingjustund. Láttu mig dreyma hið djarfa og fagra í djúpum og nærandi blund. Syngdu mér lagið sem lyfti mér forðum með ljósgeislans vængjum á flug. Andaðu kveðju frá...

Sorg (1 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Þín sorg var djúp og svört eins og gröfin. Glatað djásnið og dýrasta gjöfin. Unnusta mín fallin í valinn. Enginn geisli um allan dalinn. Þú sökkst í þunglyndið sár og þreyttur, í framkomu allri og fasi breyttur. Í forsælu gekkstu, skreiðst inn í skuggann og bannaðir öllum að opna gluggann. En tár þín á vonanna vængi hrundu og gáfu þeim líf til að lyftast frá grundu. Tíminn er mjúkur ef mein þarf að græða hann mildar allt, þegar sárin blæða. Öryggi finnuru í hans mundum. Hann þerrar tárin að...

Ástin (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Réttu ástvini þínum höndina svo þið megið leiðast á vit vonanna. Taktu um mitti unnustunnar svo þið megið stíga dans gleðinnar meðan dagarnir renna í djúp gleymskunnar. Hamingjan er það eina, sem vert er að minnast. Pétur Aðalsteinsson

"Missir" (6 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Þetta byrjaði óskup skemmtilega, ég var bara á fullu í því að blanda geði við anað fólk og hunda auðvitað og hafði gaman að =) Tító var auðvitað bara að leika við hunda þessa fólks í kringum okkur. Like 2 tímur seinna kom eldri maður með 4 hunda, þrír þeirra voru hvolpar svo auðvitað hafði Tító meira gaman af þeim en hinum þar sem hann var stóri kaddlinn og gat ráðið yfir hinum. Þeir voru bara eitthvað að leika sér þarna í kringum okkur svo ég hélt bara áfram að tala við þetta fólk. Skömmu...

Neyðarástand!! (2 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Hæ.. ég heiti Tító og er rúmlega 3ja ára æðislegur hreinræktaður boxer strákur. Ég á hérna í svolitlum vandræðum.. mig langar til að ættleiða mér konu, hreinræktaða. Ef þú átt eða veist um einhverja sem vantar nýtt heimili þá máttu endilega hafa samband við mömmu hér á huga eða í síma 6908526. Ég yrði alveg ofboðslega þakklátur. Tító og mamma (Gréta) =)

Martraðir!! (18 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Fá hundar martraðir?? Ég vaknaði upp núna um daginn við það að Tító minn var að gelta sem hefur ekki gerst nema 2var síðan ég fékk hann fyrir rúmu ári síðan. Ég kveikti ljós og teigði mig að honum til að tékka á honum, en þarna lá hann alveg steinsofandi og hrauteinsog er víst ekkert ótýtt með boxera. Inná milli hrotnanna komu allavegana væl og gelt jafnvel grátur svo hristist hann allur til og skalf. Ég hef átt allnokkra hunda um ævina en enginn þeirra hefur látið svona. Þess vegna get ég...

Saga (17 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þið eruð sjálfsagt öll búin að sjá þetta.. ensku eða .ísl útgáfuna en ég bara varð að peista þessu hérna inn. “Hvernig gastu gert þetta?” Þegar ég var hvolpur, skemmti ég þér með skrípalátum og fékk þig til að hlæja. Þú kallaðir mig barnið þitt, og þrátt fyrir nokkra nagaða skó og ónýta púða, varð ég besti vinur þinn.Í hvert skipti sem ég var “óþekk”, hristir þú höfuðið og spurðir: “hvernig gastu gert þetta?”- en svo brostir þú og veltir mér á bakið til að klóra mér á maganum. Að gera mig...

Saga (8 álit)

í Skátar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ég var á einhverju vafr-flippi hérna áðan og fann þessa rosalega átakanlegu sögu. Ég hálfpartinn grét yfir henni og tárin stoppuðu ekki. Ég bara varð að peista henni hérna… “Hvernig gastu gert þetta?” Þegar ég var hvolpur, skemmti ég þér með skrípalátum og fékk þig til að hlæja. Þú kallaðir mig barnið þitt, og þrátt fyrir nokkra nagaða skó og ónýta púða, varð ég besti vinur þinn.Í hvert skipti sem ég var “óþekk”, hristir þú höfuðið og spurðir: “hvernig gastu gert þetta?”- en svo brostir þú...

Það sem börnin kenna okkur! (1 álit)

í Börnin okkar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ég bara varð að koma þessu hérna inn =) Það sem börnin kenna okkur : Það er skemmtilegra að lita út fyrir línurnar .. Ef þú ætlar að lita á vegginn í stofunni, þá er betra að gera það bak við sófann.. Það er ekki satt að Súpermann hafi alltaf borðað grænmeti þegar hann var lítill .. Ef hundinum þínum líkar ekki við fólk, þá ætti þér ekki að líka það heldur .. Jafnvel þó þú hafir dorgað á bryggjunni í 3 tíma og ekki fengið neitt nema þara og sólbruna á nefið, þá hefur þú það a.m.k. betra en...

HJÁLP!!! (9 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ég er hérna í alveg rosalegum vandræðum og var því að vona að þið gætur kanski hjálpað. Ég er með boxer strák sem er alltaf alveg oboðslega þægur og góður NEMA hann sé laus úti og á að koma inn í hús / bíl aftur t.d. þegar ég fer með hann á Geirsnef (hundaeyjuna). Ég hef heyrt um aðra boxer eigendur að þeir eigi í sama vanda, ég er líka búin að prufa að fara með hann á námskeið en það virðist ganga enn síður að fá utanaðliggjandi hjálp. Hvað get ég gert??

Kanínur til sölu/gefins (0 álit)

í Gæludýr fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Við erum hérna 2 kanínur, strákur og stelpa okkur okkur vantar heimili. Stelpan er svört í hvítum sokkum og með hvítan blett á enninu og strákurinn er gulur/ljósbrúnn og hvítur. Ef einhverjir hafa áhuga á að ættleiða okkur getiði haft samband við Grétu í síma 6908526, email nice@talnet.is eða Fjólu 8457221
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok