Hamingjufley

Um djúpbláa voga,
þegar deginum hallar
dansa skugganna bönd
yfir kyrrlátan sæ.
Og andvarans fingur
vekja geislandi gárur
og það glittir í ljós
yfir vakandi bæ.

Í gleðinnar örmum
vakir söngvanna seiður
og sorgirnar týnast
út í vorljósið bjart.
Um djúpbláa voga
undir sólgullnum seglum
sigla daganna fley
klædd í ljómandi skart.

Pétur Aðalsteinsson frá Stóru-Borg