Barn að leik

Einn, tveir, einn, tveir.
Smáir fætur tipla og troða mold og leir.
Lítil stúlka leikur sér,
léttan fót um völlinn ber.
Undur glöð hún unir sér
við anganblóm og reyr.

Sæl ert þú með bros á brá
barnið mitt unga og þrá.
Ljóma augun blíð og blá
sem brosi morgunsól.
Ofan í laut og upp á hól
ofurlítinn rauðan kjól
sé ég skjótast, skjótast til og frá.

Heyri ég óma hlátrasköll.
Heyri ég þín gleðiköll.
Byggðu þér glæsta háa höll
úr heitri æskuþrá.

Einn, tveir, einn, tveir.
Smáir fætur tipla og troða mold og leir.

Hamingjan er nægjusöm
og heimtar ekki meir.

Pétur Aðalsteinsson