Réttu ástvini þínum höndina
svo þið megið leiðast
á vit vonanna.

Taktu um mitti unnustunnar
svo þið megið stíga
dans gleðinnar
meðan dagarnir renna
í djúp gleymskunnar.

Hamingjan er það eina,
sem vert er að minnast.

Pétur Aðalsteinsson