Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Nala
Nala Notandi frá fornöld 42 ára kvenmaður
504 stig

mikill missir á Akureyri (10 álit)

í Handbolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Jæja þá er það komið - þann 31 október misstu Þórsarar - já og bara Akureyringar einn sinn besta leikmann, línumanninn Hörð Fannar Sigþórsson. Hörður - eða Höddi eins og flestir þekkja hann- fékk leyfi frá félagi sínu Þór til að hugsa sinn gang um hvað hann vildi gera í sambandi við handboltann, hugurinn leitaði mikið suður og var hann búinn að svipast mikið um. Á hrekkjavöku, föstudaginn 31.október skrifaði Höddi svo undir samning við HK. Í gær, þriðjudag var hann svo löglega tekinn inn í...

hvenær á að hætta stjórnseminni !? (9 álit)

í Börnin okkar fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Hæhæ allir foreldrar hérna á huga. Ég er 22 ára yngsta BARN foreldra minna … já ég skrifa BARN með stórum stöfum því það er þannig sem komið er fram við mig. Ég bý ennþá heima hjá mömmu og pabba, er í framhaldsskóla og á 2 ár eftir, hef leyft mér ýmisslegt eins og að sleppa ári úr skóla til að ferðast. Núna á þessari önn er ég búin að vera í skólanum einungis af hræðslu við foreldra mína, hrædd um að þau verði fyrir vonbrigðum með mig ef ég dett út - aftur - og í þetta skipti fyrir lélega...

Þroski framhaldsskólanema (8 álit)

í Skóli fyrir 22 árum
Framhaldsskóli: nemendur á aldrinum 16 ára og uppúr, komnir saman til að undirbúa sig fyrir framtíðina, sumir stefna á framhaldsnám að loknu prófi, aðrir stefna beint út í atvinnulífið, sumir ætla að ferðast o.s.frv. Ég stunda nám við Verkmenntaskólann á Akureyri (VMA) og er búin að vera í og úr skóla í 5 ár. Tekið mér frí til að kynnast vinnumarkaðinum og ferðast. Þann tíma sem ég hef eytt á vinnumarkaðinum hef ég kynnst allskonar fólki, hámenntuðu og faglærðu, en einnig “high school...

Vinátta (8 álit)

í Rómantík fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Eitt það sem mér finnst nauðsynlegt, er að eiga vin til að tala við. Og er það ekki sjálfsagt að eiga einn, hvað þá fleiri. Til er málsháttur sem hljómar einhvern veginn svona: Allir eru vinir þar til á reynir Mér finnst margt til í þessu stutta málshætti, ég hef oft talið mig eiga marga vini, og svo þegar ég þarf á þeim að halda þá eru þeir ekkert vinir mínir ! Eins og ein stelpa sem ég er oft með, ég taldi hana bestu vinkonu mína þar til ég varð fyrir smá andlegu áfalli og kom þá í ljós að...

Yfirvofandi verkfall.... (1 álit)

í Hugi fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég hef verið mikið að velta því fyrir mér, að nú er komið fjölmiðlabann í karphúsið og þar af leiðandi höfum við ekki hugmynd um hvernig samningaviðræðum gengur, finnst mér þetta ansi slæmt fyrir okkur nemendur sem þurfum að vita hvernig samningaviðræðum miðar áfram…. Svo annað, eins og með mig ef prófin verða í janúar þá mun ég ekki getað tekið þau þar sem ég verð ekki í landinu, er ég þá fallin í öllum áföngum, mér finnst við nemendur hafa gleymst algjörlega … Það má vera að þetta sé bull...

JÓLIN :) (12 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Jæja þá fer þessi dásamlegi tími að byrja, Jólin. Mig langar einungis að segja eitt (kannski meira :þ) en það er að við skulum muna hvers á að minnast um jólin, ekki bara hugsa um pakkana og svoleiðis, heldur skulum við muna að þetta er afmæli Krists og að þetta er hátíð ljóss og friðar, EKKI hátíð pakkanna og sælgætisins. Kennum börnunum að bera virðingu fyrir Guði og Jesús, kennum þeim að jólin er friðartími og að þetta sé afmæli Krists. Frá því ég var barn hef ég farið í barnamessu í...

Snjókast.... (12 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Okey ég veit að þið hugsið öll vel um börnin ykkar og mig grunar að flestum þeirra finnst rosagaman að leika úti í snjónum (sem er allavega hér á Akureyri) og mig langar að koma einni ábendingu til ykkar: Segið börnunum ykkar að það getur verið STÓRHÆTTULEGT að kasta snjó í bíla, og það meigi ALLS EKKI…. Þegar pabbi minn var lítill þá voru hann og nokkrir vinir hans úti að leika sér að kasta snjó í bíla (ég VEIT að börn gera þetta enn þann dag í dag) og í eitt skiptið þegar einn vinanna...

Ekkert smá rómó :) (6 álit)

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Í gærkvöld var týpískt vetrarveður hér á Akureyri en það var snjókoma og kallt og því fannst mínum fyrrverandi (X) alveg tilvalið að fara og bjóða mér upp á ís !!! Ég er þessi furðuvera sem finnst ekkert betra en að fá ís þegar mér er kallt … En allavega þá fórum við skjálfandi úr kulda út í uppáhaldssjoppuna okkar, Kaupang, og fengum okkur þennan líka góða ís og settumst með hann út í bíl, ennþá skjálfandi úr kulda og borðuðum saman úr sömu dollunni og hlustuðum á róleg lög á Bylgjunni. Svo...

Farin !!! (13 álit)

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Jæja ég fór á ball með mínum fyrrverandi og nokkrum vinum okkar á föstudagskvöldið og allt var fucked up !!! Á morgun er ég að flytja heim til mömmu og pabba og svo í byrjun janúar fer ég út !! Vonandi bara að það verði verkfall svo ég þurfi ekki að hlusta á nöldrið í foreldrum mínum þegar prófin verða !!! En allavega þá er ég flutt út en við erum samt vinir og alle… Já og Gizmina billjón þakkir fyrir að vera svona góð við mig á föstudagskvöldið :) Luv you all Nala e.s ég veit að þetta er...

Donuts (20 álit)

í Teiknimyndir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
okey eins og þið vitið þá elska allar teiknimyndapersónur Donuts … En ein spurning til ykkar, hafið þið smakkað ekta donuts ? Ekkert eðlilega sjúklega góðir :) Þegar ég var í Þýskalandi í sumar þá nánast lifði ég á þessu, geggjað góðir …. slef slef :þ Bara smá innskot til að segja ykkur þetta ;) Luv Nala donutssjúklingur :o)

Þunglyndi (4 álit)

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mig langar bara til að segja ykkur eitt með þunglyndi að ég þekkti mann sem var nýútskrifaður úr háskóla og nýgiftur, með MJÖG vel launað og gott starf sem var draumastarfið hans, þau áttu um 5 mánaða gamla dóttur, en samt hengdi hann sig ! Hann var búinn að eiga draumalífið sitt og átti dásamlega fjölskyldu, en eins og hann orðaði það “þá var eitthvað í undirmeðvitund hans sem gat bara allt í einu birst, t.d þegar hann hélt á dótturinni í eitt skiptið”. Okey þunglyndi er ekkert sem þú gerir...

ólíkar tilfinningar.... (10 álit)

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég á bróður sem er ári eldri en ég og núna fyrr í haust hætti hann og kærastan hans saman eftir 2 ára samband og er bróðir minn (X) alveg í rúst andlega og hefur hann meira að segja hugleitt það að binda bara endi á allt saman, en sem betur fer eigum við svo dásamlegan frænda sem tók X að sér og fór með hann til sálfræðings og svoleiðis. En það sem mig langar til að segja aðallega er það að sama hvað gerist þá er ENGINN vandi leystur með því að binda endi á allt saman, ef þið eruð eitthvað...

Segðu... (5 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Segðu mér - ég gleymi Sýndu mér - ég man Leyfðu mér að vera með og hlutinn þá ég kann. Munið, að börnin læra meira á að fá að vera með heldur en ef þið talið bara og talið !!! Luv Nala

Rómantískt ??? (6 álit)

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Í gær var verið að sýna frá setningu ólimpíuleika fatlaðra og horfði ég á það. Verð ég hreinlega að viðurkenna að ég táraðist yfir því hvað mér finnst hreint frábært hvað þetta fólk er duglegt, t.d blinda (ég held að hún hafi verið blind) stelpan sem hljóp með ólimpíueldinn, eða þessi með eina löpp á hækjum. Mér finnst æðislegt að sjá hvað þeim gengur vel og eru sterk. Okey þetta passar kannski ekki beint inn á rómantík en ég bara varð að segja ykkur þetta, mér finnst þetta bara svo frábært… Luv Nala

Föt eða engin föt !!! (12 álit)

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Okey í umræðunni um það hvað er í tísku og hvað ekki og hverju maður á að klæðast þá langar mig að segja ykkur MJÖG stutta sögu úr ferðalagi sem ég fór í í sumar: Núna í sumar fór ég til Berlínar. Ég var oftar en einu sinni í lest en eitt er mér minnistæðast úr þessum ferðum. Stuttu áður en ég átti að fara úr lestinni kom maður, ca. 25 ára inn í lestina á brókinni….og ENGU öðru, ekki einu sinni skóm hvað þá meira !!! Pælið í því hvernig fólk myndi bregðast við hér ef maður færi svona út með...

Hætt saman :´( (21 álit)

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég hætti með kærastanum mínum á laugardagskvöldið :´( Við ákváðum það í sameiningu en ég mun búa áfram heima hjá honum þar til ég fer út eftir nokkra mánuði því að ég get ekki búið heima hjá foreldrum mínum og hef engan annan stað ! Langaði bara að leyfa ykkur að vita þar sem þið hafið svo oft hjálpað mér :) Takk fyrir allt Luv you all Nala

Skíði.... (2 álit)

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mig hefur dreymt svona trilljón sinnum að ég sé upp í fjalli á skíðum (einhverju fjalli þar sem eru lyftur og allt) og svo alltaf þá er ég ýkt hrædd við að fara að stað og svo þegar ég er farin af stað þá dett ég og svo bara hættir draumurinn ! Okey svona er saga mín úr raunverulega lífinu: Ég datt af skíðum fyrir um 5 árum og eyðilagði gjörsamlega hnén á mér. Ég hef farið á skíði nokkrum sinnum síðan og allt í okey og er ég ekkert hrædd eða neitt. Getur verið að atvikið sem ég datt (í...

Vinátta ... (5 álit)

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég á vinkonu sem er með strák eins og ég og eru þau voða happý :) En það sem er er að hún er þannig að þegar hann er ekki í skólanum eða eitthvað þá virðist hún ekki getað slitið frá honum til að gera eitthvað með manni. Ég á nokkrar vinkonur og þær eru allar nema ein með strák en samt höfum við allar tíma og áhuga til að hittast og gera eitthvað, án strákanna, nema þessi eina. Okey ég hef reynt að tala við hana en ekkert virkar og ég veit um brilljón vini hennar sem hafa sagt þeim að það sé...

FÖT (11 álit)

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hvernig væri ef við myndum bara taka okkur til og ganga í sömu “fötum” og Adam og Eva gerðu :) Nei nei það sem mig langaði að segja er það að þegar þið takið til í fataskápnum ykkar næst viljið þið þá muna eftir öllum þeim sem hafa kannski misst allt sitt af einhverjum ástæðum, og gætu þurft fötin ykkar. Hægt er að fara með gömul föt t.d til Rauða krossins og/eða í hjálpræðisherinn… Hugsum vel til þeirra sem eiga erfitt og styðjum þau með þessu. Luv Nala

Ofbeldi (10 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hvað teljið þið ofbeldi á börnum ? Finnst ykkur það rangt þegar þið sjáið móður/föður taka í upphandlegg á barni og hrista það til, ef það er til dæmis að fá frekjukast útí búð ? Nú tíðkaðist það í gamla daga að ef börnin hlýddu ekki þá voru þau rassskellt, hvað finnst ykkur um það ? Ég persónulega er á móti ofbeldi við uppeldi en stundum held ég að það þurfi að beita vægu á sum börn en hörku á önnur, því eins og þið öll vitið þá eru börn misjöfn eins og þau eru mörg… Æi ég set þetta yfir...

dagurinn... (2 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þegar þú komst í heiminn var rigning en það var bara himininn að gráta því hann var búinn að týna fegurstu stjörnunni sinni :) Geggjað sætt, er það ekki… Systir mín sendi mér þetta í sms-i um daginn, þetta fékk mig næstum til að gráta :´( Svo sendi vinkona mín mér þetta: Friends are like angels sent down to earth to make good days and help us find our way. Thanks for being my friend… Thanks for being my ANGEL Jæja mig langaði bara til að deila þessu með ykkur :) Ef þið viljið fá að sjá...

Að hætta saman (13 álit)

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
okey, þetta passar kannski ekki inn á þennan link en so what. Eftir um 5 mánuði er ég á leiðinni til útlanda í 1 ár og ætla ég þá að hætta með kærastanum mínum, okey það er ekki eins og við eigum í einhverju æðislegu sambandi þessa dagana. Eins og í gærkvöld þá ætluðum við í sund, nei okey þegar svo kom að því að fara og ég búin að taka okkur til og allt þá segist hann ekki nenna !!! Ég er búin að heyra þetta svona brilljón sinnum, að hann nenni ekki að gera hitt og þetta með mér. Fyrir ekki...

Hvað er í tísku ? (14 álit)

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Bara að koma af stað smá umræðu, en hvað finnst ykkur vera í tísku núna og hvað ekki og þá á ég við föt ? Mér finnst í raun allt vera í tísku sem að hverjum og einum finnst flott og þægilegt, og þar af leiðandi er í tísku hjá mér að vera í úlpu þegar það er kalt í stað þess að vera í næfarþunnum þröngum óþægilegum jakka (að mínu mati) !!! Segðu þitt álit… Luv Nala

Bylgjan (3 álit)

í Rómantík fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ef eitthver er hrifinn af rólegri og rómantískri tónlist ætti hann/hún að hlusta á Bylgjuna á kvöldin (ekki föstudags- og laugardagskvöld) frá klukkan 20:00 - ? en þá er bara spiluð rómantísk tónlist, ekkert smá æðislegt :) Luv Nala

Smá hjálp takk ! (14 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
okey ég er haldin alveg óstjórnanlegri löngun til að verða mamma. Ég meira að segja sleppi stundum pillunni (sem ér er á) til þess að verða ófrísk… Ég veit að ef ég verð ófrísk þá verð ég einstæð mamma, en sama er mér !! Ég fékk sjálf hræðilegt uppeldi, þar sem ekki var hikað við að híða okkur…. og er ég því pínu hrædd við það hvernig mamma ég muni verða samt hef ég aldrei lagt hendur á neinn, ég meira að segja get ekki drepið flugu þótt hún sé að angra mig, ég gerði það einu sinni óvart og...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok