Ég hef verið mikið að velta því fyrir mér, að nú er komið fjölmiðlabann í karphúsið og þar af leiðandi höfum við ekki hugmynd um hvernig samningaviðræðum gengur, finnst mér þetta ansi slæmt fyrir okkur nemendur sem þurfum að vita hvernig samningaviðræðum miðar áfram….
Svo annað, eins og með mig ef prófin verða í janúar þá mun ég ekki getað tekið þau þar sem ég verð ekki í landinu, er ég þá fallin í öllum áföngum, mér finnst við nemendur hafa gleymst algjörlega …
Það má vera að þetta sé bull og vitleysa í mér, en þetta er nú bara samt það sem mér finnst og ef þér finnst eitthvað annað eða hefur eitthvað um þetta mál að segja, þá endilega gerðu það.

*áhyggjufull*
Nala