okey, þetta passar kannski ekki inn á þennan link en so what. Eftir um 5 mánuði er ég á leiðinni til útlanda í 1 ár og ætla ég þá að hætta með kærastanum mínum, okey það er ekki eins og við eigum í einhverju æðislegu sambandi þessa dagana. Eins og í gærkvöld þá ætluðum við í sund, nei okey þegar svo kom að því að fara og ég búin að taka okkur til og allt þá segist hann ekki nenna !!! Ég er búin að heyra þetta svona brilljón sinnum, að hann nenni ekki að gera hitt og þetta með mér. Fyrir ekki nema svona 4 mánuðum þá vildi hann gera nánast allt með mér en ekki lengur. Okey svo þegar við vorum að fara að sofa þá sagði ég við hann að ég ætlaði að flytja út á morgun (þ.e. í dag) og getið hvað, hann bað mig um að vera lengur… Drengurinn er búinn að viðurkenna að hann elski mig bara sem vin og að hann langi til að hætta með mér, það var meira að segja hann sem stakk upp á því að hætta saman, og svo í hvert skipti sem það kemur að því að ég ætla að flytja út því að við erum alltaf að rífast og svoleiðis þá biður hann mig um að vera þar til ég fer til útlanda, eftir 5 MÁNUÐI… Okey hann vill ekki tala um þetta en þetta fer að verða frekar pirrandi þar sem hann er að særa mig GEÐVEIKT mikið með því að vilja lítið sem ekkert gera með mér nema stunda kynlíf .. Hvað á ég að gera, ég elska hann geðveikt og vil vera með honum og vil ekki særa hann með því að flytja bara út (mig langar heldur ekkert til að flytja út) en það er bara ekki séns að fá hann til að tala um þetta því að hann segir alltaf bara fyrirgefðu….FYRIRGEFA HVAÐ ??? Æi hvað á ég að gera ?? Fara bara út eða hvað …. ? Hvað ef hann elskar mig en þorir ekki að segja það… Hann er svo agalega mikið þannig að hann talar aldrei og ég fæ ekkert upp úr honum….
HJÁÁÁÁÁÁÁÁÁLP !!!!!!!!
Ykkar
Nala